Mazda MX-5, heimsbíll ársins, frumsýndur á laugardaginn Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2016 15:08 Mazda MX-5.
Brimborg frumsýnir nýjan Mazda MX-5, heimsbíl ársins 2016, laugardaginn 2. apríl milli k. 12 og 16 í sýningarsal Mazda að Bíldshöfða 8. Einnig verða til sýnis sérstakar sportútfærslur af öðrum Mazda bílum. Fyrsti Mazda MX-5 bíllinn kom á markað árið 1989 sló strax í gegn og er í dag vinsælasti blæjubíll heims. Nú er komin fjórða kynslóð af þessum goðsagnakennda bíl. Mazda MX-5 var nýlega valinn heimsbíll ársins 2016 World car of the year 2016 og einnig hlaut hann hönnunarverðlaunin World Car design of the Year. Sá fyrsti sem hlýtur báða titlana. Þar að auki varð hann hlutskarpastur í vali á bíl ársins í Japan 2015-2016. Mazda MX-5 hlaut einnig þennan eftirsóknaverða titil árin 2005-2006. Fleiri verðlaun hafa fallið í skaut Mazda MX-5. Hann var til að mynda valinn „Roadster of the Year 2015“ af virta bílatímaritinu Auto Express, hlaut einnig hönnunarverðlaunin Red Dot Design Award: Best of the best 2015, og þá var hann auk þess valinn Best Convertible 2016 af What Car tímaritinu. Nýr Mazda MX-5 er byggður á firna sterkum rótum forvera síns og hefur allt sem þessi goðsögn innan sportbílaheimsins hefur verið þekkt fyrir og meira til. Nýr MX-5 er hannaður í anda KODO – Soul of Motion hugmyndafræðinnar sem innblásin er af hreyfingum, krafti og lipurð blettatígurs.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent