Tónlist

Michael Stipe syngur Bowie

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Michael Stipe söngvari R.E.M. skartar gráu jólasveinaskeggi þessa daganna.
Michael Stipe söngvari R.E.M. skartar gráu jólasveinaskeggi þessa daganna. Vísir/Getty
Á morgun og föstudag ætla margir af helstu tónlistarmönnum heims að minnast David Bowie á tónleikum í New York. Fyrri hlutinn fer fram í Carnegie Hall á morgun og sá seinni í Radio City á föstudag. Þar koma margir af góðvinum söngvarans látna fram en um undirleik í mörgum tilfellum sér hans eigin tónleikahljómsveit.

Michael Stipe, söngvari R.E.M., verður einn þeirra sem kemur fram á tónleikunum og mætti hann með glæsilegt jólasveinaskegg til Jimmy Fallon í gærkveldi til þess að vekja athygli á viðburðinum.

Hér má heyra hann flytja lagið „The Man Who Sold the World“ úr þættinum.

Pixies á tónleikum í Laugardalshöll.
Stórkostleg dagskrá

Tónleikarnir stefna í að verða ógleymanlegir eins og Bowie sjálfur því ásamt Michael Stipe koma þar m.a. fram; Pixies, Cat Power, Blondie, Patti Smith, Mumford & Sons, Anna Calvi, The Roots, Laurie Anderson, Bette Midler, The Flaming Lips, TV on the Radio og Kronos Quartett svo fátt eitt sé nefnt.

Ágóði af tónleikunum rennur til hinna ýmsu samtaka sem tengjast ungu fólki og tónlistarsköpun. Þar má nefna Little Kids Rock, Church Street School of Music, the Center for Arts Education og fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×