Bandaríski kylfingurinn John Daly þekkir golfið og bestu kylfinga heimsins betur en margur og hann sannaði það í spádómi sínum fyrir úrslit Mastersmótsins um helgina.
Það kom flestum mikið á óvart að sjá hinn 28 ára gamla og lítt þekkta Englending Danny Willett fagna sigri á Augusta-golfvellinum á sunnudagskvöldið en John Daly var með það að hreinu að það væri von á miklu frá honum.
John Daly mætti nefnilega í “The Dan Patrick Show” í síðustu viku og nefndi Danny Willett fyrstan á nafn þegar hann var beðinn um að spá fyrir um það hver fengi græna jakkann í ár.
„Danny Willett er sá sem ég tel að geti komið á óvart á mótinu. Við munum sjá þá bestu berjast um þetta. Við munum sjá Jason Day meðal efstu manna og það er aldrei hægt að afskrifa Phil Mickelson eða Bubba (Watson). Takið samt eftir mönnum eins og Scott Piercy eða Danny Willett. Þeir spila báðir mjög vel á mjög hröðum flötum," sagði John Daly fyrir Mastersmótið.
Danny Willett hafði aldrei komist inn á topp fimm á risamóti hvað þá unnið það fyrir Mastersmótið í ár og það þótti því athyglisvert hvað John Daly hafði mikla trú á honum.
John Daly sýndi það að hann þekkir vel til manna í golfinu og þessi frábæri spádómum mun kannski hjálpa honum að verða fyrirliði bandaríska Ryder-liðsins í framtíðinni.
Spáði fyrir um óvæntan sigur Danny Willett á Mastersmótinu

Tengdar fréttir

Fyrsti Englendingurinn í tuttugu ár sem vinnur Masters
Englendingurinn Danny Willett stóð uppi sem sigurvegarin á Masters eftir virkilega góðan lokahring á Augusta-vellinum í Bandaríkjunum í dag.

Fergie tjáði Willett að hann hefði veðjað á Spieth | Myndband
Það var frekar vandræðaleg uppákoma þegar Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, tjáði nýkrýndum Masters-meistara, Danny Willett, að hann hefði veðjað 1,4 milljónum króna á Jordan Spieth.

Jordan Spieth: Svona 30 mínútur upplifi ég vonandi aldrei aftur
Jordan Spieth var í góðum málum og á góðri leið með að tryggja sér sigur á Mastersmótinu annað árið í röð þegar allt breyttist á nokkrum hryllilegum mínútum.

Mastersmeistarinn hefði auðveldlega getað misst af mótinu
Danny Willett varð í gærkvöldi fyrsti Englendingurinn í tuttugu ár til að vinna Mastersmótið í golfi en hann nýtti sér ekki bara algjört hrun hjá fráfarandi meistara Jordan Spieth.