Tónlist

Bryan Adams aflýsir tónleikum í mótmælaskyni

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Bryan Adams stendur með samkynhneigðum í Mississippi.
Bryan Adams stendur með samkynhneigðum í Mississippi. Vísir
Íslandsvinurinn Bryan Adams er ekki par sáttur við nýja löggjöf sem samþykkt var í Mississippi fylki Bandaríkjanna nýverið sem gefur fyrirtækjum og trúarhópum leyfi til þess að synja samkynhneigðum um þjónustu.

Á dagskrá tónlistarmannsins voru tónleikar á fimmtudaginn í borginni Biloxi í Mississippi-ríki og ákvað hann að afboða þá í mótmælaskyni við nýju lögin. Þar fylgdi hann í kjölfar rokkarans Bruce Springsteen sem afboðaði fyrirhugaða tónleika sína í Norður-Karólínuríki af sömu ástæðu.

Í fréttatilkynningu sagði Adams að hann gæti ómögulega skilið að brotið sé með lögbundnum hætti á LGBT fólki og að hann gæti þess vegna ekki með góðri samvisku staðið við skuldbindingar sínar um tónleikahald.

„Vonandi mun Mississippi sjá að sér og leiðrétta þetta. Þá mun ég snúa aftur og spila fyrir fjölmarga aðdáendur mína í fylkinu.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×