Kári beindi "byssu“ að sínum gamla samherja og fékk rautt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2016 23:08 Kári fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks. vísir/vilhelm
Haukar eru komnir í 2-0 í einvíginu við ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla eftir 33-34 sigur í öðrum leik liðanna í Eyjum í kvöld. Leikurinn var mögnuð skemmtun en tvær framlengingar þurfti til að knýja fram úrslit. Tvö rauð spjöld fóru á loft í leiknum, bæði á Eyjamenn. Varnarjaxlinn Sindri Haraldsson fékk sína þriðju brottvísun í annarri framlengingunni og í fyrri hálfleik fékk Kári Kristján Kristjánsson beint rautt fyrir viðskipti sín við Hákon Daða Styrmisson. Þegar fjórar mínútur voru til hálfleiks, í stöðunni 7-10 fyrir Hauka, braut Hákon á Kára og víti var dæmt, eða eins og segir í umfjöllun blaðamanns Vísis um leikinn: „Hákon Daði braut á Kára en þá var dæmt vítakast, Kári virtist þá fara viljandi með hendurnar í hausinn á Hákoni Daða og héldu margir að hann fengi rautt spjald. Dómararnir komust að þeirri niðurstöðu að Hákon fengi tveggja mínútna brottvísun fyrir brotið og Kári fyrir viðbrögð sín. „Þegar þeir voru að labba af vellinum ætlaði Hákon Daði að taka í spaðann á Kára sem virðist hafa misst stjórn á sér í nokkrar sekúndur. Hann myndaði byssu með hendinni og færði hana í áttina að hausnum á Hákoni. Dómarar leiksins voru ekki lengi að sýna Kára rauða spjaldið sem verður að vera ósáttur við sjálfan sig að láta táning leiða sig í svona gildru.“ Á Facebook-síðu handknattleiksdeildar Hauka má sjá myndasyrpu af þessu atviki en þar sést Kári beina „byssunni“ að höfði Hákons. Hornamaðurinn ungi átti frábæran leik í kvöld og skoraði 12 mörk en hann gekk til liðs við Hauka frá ÍBV fyrr í vetur. Hákon hefur reynst sínum gömlu félögum afar erfiður í einvíginu en hann skoraði 10 mörk í fyrsta leiknum á Ásvöllum og hefur því skorað samtals 22 mörk í leikjunum tveimur. Myndir af atvikinu má sjá á Facebook-síðu Hauka.
Olís-deild karla Mest lesið Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Bjór kastað í konu McIlroy: „Þurfti að þola ótrúlegt magn af svívirðingum“ Golf Þrefaldur heimsmeistari í slagsmálum á kebabstað Sport Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Fótbolti Sjáðu Elmar skora beint úr horni, tvennu Freds og þrennu Hermanns Íslenski boltinn „Ertu að horfa Donald Trump?“ Golf Frá Fram á Hlíðarenda Íslenski boltinn Opnar sig um djammið: „Hjálpaði mér ekki“ Enski boltinn Áhugasamur verði Amorim rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira