Enski boltinn

Viktor Bjarki: Draumurinn er að vinna titil með Víkingi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Víkingar úr Reykjavík enda í sjötta sæti Pepsi-deildar karla í fótbolta í sumar ef spá íþróttadeildar 365 gengur upp. Það er þremur sætum ofar en liðið hafnaði eftir vonbrigða sumar í fyrra en undir þeirra væntingum miðað við félagaskipti vetrarins og gengi á undirbúningsmótunum.

„Ég held að þetta sé bara sanngjarnt miðað við gengið í fyrra en okkur hefur gengið vel í vetur. Spá er bara spá einhverja manna en við ætlum okkur að gera betur en sjötta sæti,“ segir Viktor Bjarki í viðtali við Vísi um spána.

Það er bjartsýni í Víkinni eftir góðan vetur: „Hefur ekki alltaf verið bjartsýni í Víkinni?“ spyr Viktor og brosir. „Við ætluðum að verða meistarar 2014. Það styttist alltaf í að það komi titill í hús. Auðvitað ætlum við að gera okkar besta til að vera ofarlega í deildinni.“

„Markmiðið er að gera betur en í fyrra. Það kemur svo bara í ljós hvernig það gengur.“

Sorglegur leikur

Víkingar komust í úrslitaleik Lengjubikarsins þar sem þeir töpuðu, 2-0, fyrir KR. Eftir góða spilamennsku framan af vetri var frammistaðan í úrslitaleiknum mikil vonbrigði fyrir Fossvogsstrákana.

„Þessi leikur var sorglegur. Það var ekkert í gangi. Ég veit ekki hvort við vorum þreyttir eftir erfiða æfingaferð. Þetta var bara ekki okkar dagur. Við komum bara tvíefldir til leiks í næsta leik,“ segir Viktor en Víkingar eiga rosalega erfiða byrjun á mótinu.

„Ég tel að það sé alltaf best að byrja á móti stóru liðunum. Það er auðveldara að gíra sig upp fyrir þá leiki. Þannig hefur það alltaf verið. Maður er tilbúnari í leiki gegn KR, FH og þessum liðum. Maður fer strax í gírinn og veit hvað maður þarf að gera.“

Mikill heiður

Viktor Bjarki sneri aftur til uppeldisfélagsins Víkings fyrir síðasta tímabil og átti mjög góðan seinni hluta á mótinu í fyrra. Hann er nú orðinn fyrirliði síns félags.

„Það er mikill heiður. Það var draumur minn þegar ég var yngri þegar ég horfði á þessa meistaraflokkskarla. Það er draumur að vera fyrirliði þíns liðs. Ég hef mikinn metnað fyrir félaginu og draumurinn er að vinna titil með félaginu,“ segir Viktor.

Gary er sigurvegari

Víkingar voru nokkuð stórtækir á félagaskiptamarkaðnum og fengu einn stærsta bitann þegar Gary Martin gekk í raðir félagsins. Viktor þekkir hann betur en allir í Víkingsliðinu enda unnu þeir saman titla hjá KR.

„Gary er fínn karakter í hóp. Hann er sigurvegari og það er eitthvað sem Víkingur þarf. Hann gefur alltaf 100 prósent. Hann leggur sig alltaf fram í leikjum og æfingum og æfir eins og vitleysingur aukalega. Hann vill vinna og skora. Hann á eftir að gera fullt fyrir okkur í sumar,“ segir Viktor Bjarki Arnarsson.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Viðtal: Tómas Þór Þórðarson

Upptaka og eftirvinnsla: Ólafur Þór Chelbat, Stefán Snær Geirmundsson, Garðar Örn Arnarson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×