Allir mega syngja með 20. apríl 2016 10:00 ,,Væntingar okkar eru þær að gestir skemmti sér jafn vel og við og eigi frábæra kvöldstund með Rokkkórnum,“ segir Matthías V. Baldursson, skipuleggjandi tónleikanna og einn hljómsveitarmeðlima. Vísir/ERNIR
Nýlega stofnaður Rokkkór Íslands stendur fyrir tónleikunum 80´s Rokk partý! næsta föstudag í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Tónleikarnir verða þó ekki með hefðbundnu fyrirkomulagi því tónleikagestum er velkomið að syngja með og standa upp úr sætunum enda um svokallaða „sing a long“ tónleika að ræða sem njóta sívaxandi vinsælda. Meðal flytjenda sem Rokkkórinn tekur fyrir eru ýmsar stórstjörnur frá níunda áratug síðustu aldar, flytjendur á borð við AC/DC, Bon Jovi, Kiss, Meatloaf, U2, Whitesnake, Bonnie Tyler og Eurythmics og því hægt að lofa miklu fjöri segir Matthías V. Baldursson, skipuleggjandi tónleikanna og stjórnandi Rokkkórsins. „Tónleikarnir verða byggðir upp sem hálgert partí. Barinn verður opinn og gestir mega alveg standa upp og kíkja þangað hvenær sem er. Það verður lítið um formlegheit enda markmiðið bara að skemmta sér saman. Textum laganna verður varpað upp á skjáinn fyrir tónleikagesti svo allir geti tekið undir og sungið með. Væntingar okkar eru þær að gestir skemmti sér jafn vel og við og eigi frábæra kvöldstund með Rokkkórnum enda eru Íslendingar þekktir fyrir að vilja syngja mikið og hafa gaman af söng af ýmsum gerðum.“Rokkkór Íslands ásamt hljómsveit halda ,,sing a long“ rokktónleika á föstudag sem byggja á lögum frá níunda ártug síðustu aldar.MYND/ÞÓRDÍS RÚNARS ÞÓRSDÓTTIRMetnaður og sönggleði Rokkkór Íslands var stofnaður í apríl á síðasta ári og fagnar því eins árs afmæli um þessar mundir. „Nokkrir vinir mínir þrýstu á mig að búa til kór sem væri skipaður vönu söngfólki sem langaði að takast á við krefjandi verkefni í tónlist og hafa gaman saman. Ég sló til og úr varð þessi flotti kór. Aðsókn í hann varð strax mjög mikil og í dag er hann skipaður rúmlega 30 manns sem flest eiga það sameiginlegt að hafa yfir áratuga reynslu í popp-, rokk- og dægurlagasöng. Metnaður, sönggleði ásamt toppgæðum eru mottó okkar.“ Rokkkórinn hélt fyrstu tónleika sína í Hörpu í febrúar og þar kviknaði hugmyndin hjá einum kórmeðlimi, að halda „sing a long“ rokktónleika með lögum frá þessu tímabili. „Prógram okkar í Hörpu var byggt upp á þekktum lögum frá níunda áratugnum og var stemmingin í salnum svo mikil að við ákváðum að láta þetta verða að veruleika. Áhorfendur voru æstir að syngja með og nú gefst fólki heldur betur tækifæri til þess.“ Lagavalið var því ekki flókið ferli að sögn Matthíasar. „Við notumst að mestu leyti við sömu lög og við sungum í febrúar. Það sem helst þarf að hafa í huga er að vera með lög sem flestir þekkja og hafa gaman af. Prógram okkar á föstudag einkennist svo sannarlega að því.“Stefnt á frekari útgáfu Auk tónleikanna á föstudag er ýmislegt framundan að sögn Matthíasar. „Við erum byrjuð að undirbúa næstu tónleika sem verða í haust en þar verður tónlist frá áttunda áratug síðustu aldar aðal þemað. Einnig er stefnt að því að fara í hljóðver og taka upp nokkur lög. Rokkkórinn er nú þegar búin að gefa út þrjú lög sem komin eru á netið og útgáfa geisladisks er á dagskránni innan tveggja ára. Einnig erum við að fara að taka þátt í mjög stóru söngleikjaverkefni en ekki er hægt að greina frá því strax.“ Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Davíð Smári Harðarson, Telma Ágústsdóttir, Íris Kristinsdóttir, Georg Alexander, Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Óli Már, Katrín Hildur Jónasdóttir, Kristjana Þórey Ólafsdóttir, Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir og Brynhildur Jónsdóttir. Matthías spilar á hljómborð og stýrir kórnum. Auk hans skipa hljómsveitina feðgarnir Davíð Sigurgeirsson og Sigurgeir Sigmundsson sem spila á gítara, Þorbergur Ólafsson leikur á trommur og Þórir Rúnar Geirsson leikur á bassa. Tónleikarnir verða í Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudaginn 22. apríl og hefjast kl. 22. Nánari upplýsingar má finna á facebook undir 80´s rokk partý auk þess sem Rokkkórinn er á facebook. Rokkkórinn er einnig með YouTube rásina Rokkkór Íslands þar sem hlusta má á nokkur tóndæmi, þ.á.m. þetta hér.
Tónlist Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Fleiri fréttir Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira