Missir af Evrópumótinu í Frakklandi í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2016 09:00 Alex Oxlade-Chamberlain. Vísir/Getty
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta, verður frá næstu tvo mánuðina vegna hnémeiðsla. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sagði frá því á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar að Oxlade-Chamberlain sé að glíma við hnémeiðsli og að hann geti ekki spilað næstu sex til átta vikurnar. „Hann á enga möguleika á því að ná Evrópumótinu. Hann kemur ekki til baka fyrr en í byrjun júlí," sagði Arsene Wenger á blaðamannafundinum samkvæmt BBC. „Þetta er mjög leiðinlegt því þú vilt sjá 22 ára strák spila á Evrópumótinu," sagði Wenger. Hinn 22 ára gamli Oxlade-Chamberlain hefur ekki spilað með Arsenal síðan að hann meiddist í Meistaradeildarleik á móti Barcelona i febrúar. Oxlade-Chamberlain missir því ekki aðeins af restinni af ensku úrvalsdeildinni heldur einnig að möguleikanum á því að spila með enska landsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar. Oxlade-Chamberlain var annars rólegur á tímabilinu og bara með 2 mörk og 2 stoðsendingar í 33 leikjum í öllum keppnum. Oxlade-Chamberlain hefur skorað 5 mörk í 24 landsleikjum en flottasta tölfræði hans með enska landsliðinu er að liðið hefur aldrei tapað þegar hann hefur spilað. Alex Oxlade-Chamberlain er ekki sá eini hjá Arsenal sem hefur lokið keppni á þessu tímabili því þýski miðvörðurinn Per Mertesacker mun ekki spila fleiri leiki. Santi Cazorla, sem hefur ekki spilað síðan í nóvember, ætti hinsvegar að geta tekið þátt í lokaleikjum Arsenal-liðsins.
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira