Íslenski boltinn

Sjáðu mikinn fögnuð Ólsara í klefanum í kvöld | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Twitter @Vikingurol
Víkingur frá Ólafsvík er í fyrsta sinn í sögu félagsins með fullt hús í úrvalsdeild karla í fótbolta eftir 2-1 útisigur á Blikum í Kópavoginum í 1. umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Víkingur unnu fyrsta sigur sinn þegar þeir voru uppi síðast (2013) ekki fyrr en í lok júní og það var því vel fagnað í klefa Ólsara eftir leikinn.

Þorsteinn Már Ragnarsson og Kenan Turudija skoruðu mörk Víkingsliðsins í leiknum en þau voru bæði af glæsilegri gerðinni.  

Sjá einnig:Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Víkingur Ó. 1-2 | Tvö glæsimörk í sigri nýliðanna

Víkingsliðinu var spáð 11. sætinu og falli í spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara en Blikar voru sex sætum ofar í spánni og kom þessi sigur Ólsara mörgum á óvart.

Víkingur settu fögnuð sinna leikmanna inn á Twitter-síðu sína í kvöld og hér fyrir neðan má sjá leikmenn liðsins syngja sigursöngva eftir leikinn.

Sjá einnig:Ejub: Eigum ekki völl til að æfa svona skot

Víkingur skoruðu tvö af flottari mörkum fyrstu umferðarinnar í þessum leik og það er einnig hægt að sjá mökrin þeirra hér fyrir neðan.

Frábært mark hjá Þorsteini Má Sigurmark Kenan Turudija



Fleiri fréttir

Sjá meira


×