Skoðun

Þvílík veisla!

Ívar Halldórsson skrifar
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin var í Svíþjóð að þessu sinni var konunglegt hlaðborð af lifandi skemmtidagsskrá í tali, gríni dansi og tónum. Öll umgjörð keppninnar var einstaklega fagmannleg og glæsileg í alla staði. Metnaður tónleikahaldara skilaði sér á skjái yfir 200 milljón heimsbúa, en aldrei hefur keppnin náð til eins margra og nú. Kínverjar og Bandaríkjamenn eru nú komnir á bragðið og hefur keppnin verið vottuð opinberlega af engum öðrum en Justin Timberlake sem fór á kostum í hálfleik keppninnar er hann flutti nýja lagið sitt "Can't Stop The Feeling."

Ný útfærsla á opinberun atkvæða gerði áhorfendum kleift að rýna betur inn í afstöðu fagmanna annars vegar og afstöðu almennings hins vegar. Mögulegur pólitískur ágreiningur er því berskjaldaðari í þessari nýju greiningu stigagjafa.

Það kom þægilega á óvart að almenningur í Úkraínu og Rússlandi blandaði ekki pólitík í stigagjöf sína þrátt fyrir að fagmannlegar dómnefndir þeirra, sem slepptu að gefa hvorri annari stig, hafi líklega gert það. Ég vona innilega að Rússar leggi allan ágreining á hilluna og mæti til Úkraínu með útspil sitt að ári.

Skoðanir almennings á málefnum Ísraelsmanna virðast hafa haft meiri áhrif á atkvæðagreiðslu í sumum Evrópulöndum en öðrum. Hvorki íslenska dómnefndin né íslenskur almenningur gáfu Ísraelum stig í þetta skiptið þrátt fyrir nokkuð rausnarlega stigagjöf margra nágrannaþjóða okkar til ísraelsku þjóðarinnar.​ Það gæti þó auðvitað verið bara tilviljun eða smekksmunur. Maður vonar alla vega að tónlistarsmekkur okkar eða annara ráðist ekki af því hverrar þjóðar flytjendur tónlistarinnar eru. Tónlist án fordóma og allt það.

Það verður þá athyglisvert að sjá hvort Úkraína nái að toppa Svíana að ári hvað glæsileika varðar. Hver ætli að troði upp í hálfleik hjá þeim? Justin Bieber? Adele? ELO? Verður Michael Jackson kannski reistur upp frá dauðum? Verður keppnin haldin neðanjarðar? Verða kynnarnir í beinni frá tunglinu? Fá kínverjar að vera með? Getum við kosið með fjarstýringunni okkar?

Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað að ári. Eitt er þó víst að Svíar hækkuðu gæðastuðulinn í keppnishaldi og flestar þjóðir virðast hafa lagt enn meiri metnað í lagaflutning og val á söngvurum en áður. Ég og fjölskylda mín skemmtum okkur í það minnsta konunglega í ár við að horfa og hlusta á fjölbreytt veisluhöldin. Við hlökkum til næstu tónlistarveislu í boði hins sænska Dumbledore og Júróvisjón akademíunnar.

Þótt pólitík og mismunandi viðhorf freisti þess stundum að sundra okkur mannfólkinu, ættum við í það minnsta að nýta meðbyr þessa árlega viðburðar til að minna okkur á að við erum öll bara manneskjur sem elskum tónlist og góða skemmtun. Megi söngurinn sameina okkur um ókomin ár.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×