Subaru Levorg STI í sumar Finnur Thorlacius skrifar 13. maí 2016 11:41 Subaru Levorg STI.
Subaru eru þekktir fyrir öfluga STI bíla sína, þá aðallega Subaru Impreza WRX STI. Nú er orðið ljóst að Subaru ætlar að bjóða Levorg bíl sinn í STI-útfærslu og hann á að koma á markað í sumar. Ekki er þó ljóst á hvaða mörkuðum þessi kraftaútfærsla bílsins verður í boði, nema að hann verður a.m.k. til sölu í heimalandinu Japan. Subaru Levorg er til sölu á fjölmörgum mörkuðum, meðal annars hér á landi og vonandi mun þessi nýja útgáfa hans verða í boði hér og þá hjá BL. Subaru hefur ekki látið uppi hvaða vél verður í bílnum en að líkindum er það 304 hestafla vélin sem finna má í Impreza WRX STI og er hún 2,0 lítra og fjögurra strokka vél með forþjöppu. Einnig er hugsanlegt að í honum verði að finna 328 hestafla vélina sem er í Impreza WRX S4. Að ytra útliti er þessi nýi Levorg að nokkru leiti frábrugðinni grunngerðinni af Levorg og víst er að loftfæðið um bílinn er betra með auknum vindskeiðum. Fjöðrun bílsins er breytt, bremsukerfið öflugra og hann er á sérstökum STI felgum. Subaru Levorg STI var fyrst sýndur á bílasýningunni í Tókýó í fyrra, en þá sem tilraunabíll, en nú munu margir fagna því að hann verður framleiddur og stutt er í komu hans.
Mest lesið Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Innlent Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Langt í frá að málinu sé lokið Innlent Íhugar ekki stöðu sína Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Innlent