Undanfarin ár hefur Dainius starfað í hönnunarteymi JÖR auk þess sem hann hefur líka hannað búninga fyrir hljómsveitina Of Monsters and Men og rokkóperu í Litháen.
Á meðan hann var í námi í heimalandi sínu segist hann hafa sótt mestan innblástur til náttúrunnar. „Ég eyddi heilu sumrunum úti í náttúrunni þar sem ég þróaði og hugleiddi hugmyndir mínar. Eftir þrjú annasöm og afkastamikil ár þurfti ég að breyta til og finna um leið nýtt landslag til að veita mér innblástur. Þannig varð Ísland fyrir valinu.“

Áhugi Dainius á hönnun og fatnaði byrjaði snemma að sögn hans. Faðir hans er verkfræðingur og uppfinningamaður og móðir hans er klæðskeri.
„Foreldrar mínir höfðu bæði mikil áhrif á mig. Þau stofnuðu fjölskyldufyrirtæki sem framleiddi föt og ég lærði af þeim, samhliða öðrum leik í æsku minni. Átta ára gamall hannaði ég fyrsta prjónamynstrið mitt á risastórri tölvustýrðri prjónavél. Næst hannaði ég æfingaföt fyrir sjálfan mig þannig að ég byrjaði snemma. Ég var þó ekki beint heillaður af hönnun á þessum tíma heldur fannst fyrst og fremst gaman að skapa eitthvað sjálfur.“
Skórnir heilla
Honum finnst íslenskir karlmenn almennt klæðast vel en segir mestu máli skipta að velja föt sem passa við persónuleika hvers og eins.
„Ég kann því vel að meta þá karlmenn sem eru óhræddir við að stunda tilraunastarfsemi í klæðaburði til þess að finna sinn eigin stíl og karakter.“ Uppáhaldsflíkur hans eru skór en sjálfur hannaði hann nokkrar skólínur fyrir fáeinum árum. „Ég á nokkur pör sem ég hef gengið til húðar og því hóf ég nýlega aftur að hanna skólínur í frítíma mínum. Það er eitthvað svo heillandi við skó og það verður gaman að sjá hvað kemur úr þessari vinnu minni.“
Ýmsir fylgihlutir eru í uppáhaldi hjá honum, þá helst hringar og handtöskur.
„Yfirleitt ber ég hringa eftir hæfileikaríkan skartgripahönnuð sem heitir Benas Staskauskasen en einn hringa hans má m.a. sjá á plötuumslagi nýjustu plötu Bjarkar. Ég á einnig fimm handtöskur sem ég nota mikið enda eru þær mjög praktískar.“

Þessar vikurnar er hann að leggja lokahönd á fatalínu í samstarfi við fyrirtæki sem sérhæfir sig í útivistarfatnaði.
„Vinnan hófst fyrir næstum ári og er nú loks að ljúka. Það er töluverð áskorun að hanna innan ákveðins ramma en um leið að vera trúr sjálfum sér og eigin hugmyndum. Í línunni notumst við við nýja nálgun að útivistarfatnaði, þar sem konsept og hönnun eru í fyrirrúmi. Ég var svo heppinn að fá fullt frelsi þegar kom að lokaútkomunni, markaðsherferðinni, umbúðum og fleira tengt fatalínunni en hún ætti að koma á markað í lok sumars.“
Hönnun Dainius Bendikas má finna á Facebook (Dainius Bendikas) og á Instagram (dainius_bendikas).