Formúlu 1 lið Force India mun koma með tasvert breyttan bíl til Spánar um helgina, samkvæmt Vijay Mallya liðsstjóra Force India.
Force India gerði beitti þessari herkænsku í fyrra lík. Þá kynnti liðið B-bíl sinn til sögunnar um mitt tímabil. Sá bíll skilaði liðinu fimmra sæti í keppni bílasmiða, sem er met fyrir Force India.
Ætlunin er að leika sama leik í ár. Mallya segir að bíllinn hafi fengið algjöra yfirhalningu fyrir spænska kappaksturinn um helgina.
„Áætlunin er að báðir bílar fái nýju hlutina fyrir æfingu á föstudaginn. Þetta er frekar mikil breyting og bíllinn mun líta töluvert öðruvísi út,“ bætti Mallya við.
„Þrátt fyrir að við höfum ekki gert eins vel g við áttum að geta í Sochi þá vorum við án´gð með frammistöðuna í tímatökunni. Bíllinn er að ná framförum og við erum með góðan grunn til að byggja á. Það eru 17 keppnir eftir og ég er öruggur um að okkar besta keppni eigi enn eftir að koma. Þetta er langhlaup en ekki sprettur,“ sagði Mallya að lokum.
