Veiði

Bleikjan lætur bíða eftir sér á Þingvöllum

Karl Lúðvíksson skrifar
Sílableikja og kuðungableikja úr Þingvallavatni.
Sílableikja og kuðungableikja úr Þingvallavatni. Mynd: KL
Þrátt fyrir hin bestu skilyrði síðustu daga virðist sem bleikjan sé ekki ennþá gengin að landi í Þingvallavatni.

Það var svo sem ekki öngþveiti við vatnið í morgun en þó náðum við tali við fimm veiðimenn sem stóðu vaktina í morgun.  Afraksturinn í morgun var sáralítill hjá þessum fimm veiðimönnum sem þó eru allir mjög vanir við vatnið.  Fram að hádegi vissum við að fjórum bleikjum á land.  Vatnið var mjög stillt, eins og spegill framan af degi og það sást á þessum tíma varla vök á vatninu og að sama skapi varla nokkur einasta fluga við vatnið.

Það eru nokkrir sérfræðingar í veiði í Þingvallavatni sem segja að réttu aðstæðurnar séu bara ekki alveg komnar ennþá og að þetta fari ekki vel í gang fyrr en eftir viku í fyrsta lagi.  Rökin fyrir því eru svo sem ekki önnur en "reynslan segir mér þetta" og í veiði eru þau rök oft góð og gild.  Við sem elskum að veiða við vatnið höldum samt áfram að fara dag eftir dag til að vera pottþétt á staðnum þegar það kviknar almennilega yfir þessu.  






×