Veiði

Skotveiðimenn tæta dýralögmanninn í sig

Jakob Bjarnar skrifar
Árni Stefán birtir hryssingsleg ummæli skotveiðimanna í sinn garð. Menn greinir á um hvort minkurinn hafi sloppið inn í hænsnakofann eða hvort hænan hafi drepið á dyr refabúsins.
Árni Stefán birtir hryssingsleg ummæli skotveiðimanna í sinn garð. Menn greinir á um hvort minkurinn hafi sloppið inn í hænsnakofann eða hvort hænan hafi drepið á dyr refabúsins.
„Viðbrögðin einkenndust af óþarfa ofurhræðslu við mig, því meinlaus er ég með öllu ólíkt skotveiðimönnum, sem ógna dýralífi, sem á jafnan rétt til líf og maðurinn,“ segir Árni Stefán Árnason dýravinur og lögmaður sem sérhæft hefur sig í rétti dýra.

Vísir greindi frá því í gær að Árni Stefán hafi sótt um inngöngu í hóp skotveiðimanna sem spá og spjalla í lokuðum hópi á Facebook. Ýmsum til furðu, þá vegna umdeildra ummæla lögmannsins sem setur hag dýranna í öndvegi þá á kostnað mannskepnunnar, var Árni Stefán samþykktur sem meðlimur í hópnum.

Menn hafa rætt um þennan mink í hænsnakofanum sem Árni Stefán hefur verið sagður á þessum vettvangi, en eins og staðan er nú virðist þetta fremur vera sem svo að hænan hafi drepið á dyr refabúsins. Í það minnsta hefur Árni Stefán nú tekið skjáskot af nokkrum ummælum sem hafa fallið þarna inni á þessum lokaða vettvangi, um sig, og birt á sinni Facebooksíðu.

Árni Stefán telur sig hafa mátt þola ómaklegar árásir af hálfu skotveiðimanna, og birtir ummæli þar um, skjáskot sem hann tók á skotveiðispjallinu.
„Til minningar eru hér nokkur ansi ruddaleg viðbrögð á einstakling (mig) sem engin skrifara kann nokkur deili á né ég á þeim. Tölum af yfirvegun um aðra en hlífum ei við gagnrýni, sem skyldi þó ætíð vera kurteis og rökstudd og munum að tjáningar og skoðanafrelsi er í landinu. Sum þessi ummæli um mig eru engum til framdráttur og þeim til minnkunar sem þau láta falla.“

Nokkuð hefur verið tekist á um veru Árna Stefáns í Skotveiðispjallinu og meðan einn spyr hvort þetta eigi að vera eins og á Pírataspjallinu, þar sem öllum þeim sem ekki fylgja sakramentinu segir annar að þetta geti vart verið vettvangur fyrir and-veiðimenn. „Út með manninn þetta er hættulegur geðsjúklingur,“ segir svo annar og víst er að Árni Stefán er enginn aufúsugestur í hópnum.


Tengdar fréttir






×