Silkimjúkur rokkari 4. júní 2016 10:00
Hljómsveitin DALÍ er hugarfóstur söngkonunnar og bassaleikarans Erlu Stefánsdóttur en hún gaf út fyrstu plötu sína í lok síðasta árs. Sveitin hefur komið víða við á stuttum tíma, m.a. á Iceland Airwaves, tónlistarhátíðinni Gærunni og á Menningarnótt í Reykjavík á síðasta ári. Um miðjan mánuðinn kemur hljómveitin svo fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum þar sem heimsfrægar sveitir á borð við Radiohead, Deftones, Die Antwoord og Of Monsters and Men koma fram. Tilhlökkunin er því eðlilega mikil hjá Erlu sem telur dagana fram að hátíðinni. „Við erum í skýjunum yfir því að hafa komist inn á Secret Solstice. Þetta er svo rosalega flott hátíð og það verða þvílík stór nöfn sem koma fram á henni. Ég er vægast sagt spennt og þakklát.“ Með Erlu í hljómsveitinni eru Helgi Reynir Jónsson gítarleikari og Fúsi Óttars trommuleikari auk þess sem Þórður Gunnar Þorvaldsson spilar með þeim á tónleikum.Fjölbreyttur bakgrunnur Erla, sem spilar bæði á píanó og bassa, útskrifaðist frá jazz- og rokkbraut söngdeildar Tónlistarskóla FÍH árið 2011 og hefur síðan þá verið með puttana í ýmsum verkefnum. „Lengstum spilaði ég á bassa með systur minni Unu Stef og einnig í hardcore- og rokkhljómsveitum, söng í silkimjúku jazztríói, stóð fyrir Joni Mitchell tribute tónleikum oftar en einu sinni og nú síðast spilaði ég á bassa í System of a down heiðurstónleikum sem verða endurteknir í september.“Draumurinn var þó alltaf að semja og spila eigið efni þar sem hún væri ekki háð einni tónlistarstefnu. „Boltinn fór loks að rúlla um haustið árið 2014 þegar ég stofna DALÍ. Ég hafði samband við Helga Reyni gítarleikara með nokkur lög sem ég átti. Við bókuðum tónleika nánast viku síðar og hoppuðum beint út í djúpu laugina en það hefur einkennt vinnuferli okkar. Yfirleitt vinnast lögin þannig að ég tek upp einhverja grunnpælingu á píanó og send á Helga og Fúsa og svo vinnum við úr lögunum saman. Viðtökurnar hafa verið einstaklega góðar og mér finnst mjög gaman hvað fólk virðist tengja við lögin okkar.“Segir sögur Tónlistarstefnan er fjölbreytt; þar gætir áhrifa meðal annars frá Joni Mitchell og Primus að sögn Erlu. „Ég sæki innblástur í textana og lögin mest í gegnum einhverja reynslu eða atburði. Mér finnst alveg ómissandi partur af tónlistinni að textinn hafi einhverja sögu eða tilgang. Ég hef hlustað mjög mikið á Tom Waits og Joni Mitchell sem eru miklir „story-tellers” og hef verið undir miklum áhrifum frá þeim í gegnum tíðina, bæði textalega og tónlistarlega.“ Á meðan Erla er ekki að syngja og spila á bassa bregður hún sér í hlutverk kennarans og kennir söng og bassaleik við Tónlistarskóla Árbæjar. Framundan eru stífar æfingar fyrir Secret Solstice hátíðina en þau eru þegar byrjuð að æfa nýtt efni og undirbúa næstu plötu. „Strax eftir helgi kemur út nýtt lag frá okkur á netinu sem heitir „Ever“. Þrátt fyrir annasaman tíma ætla ég þó að reyna að eiga notalega helgi. Stefnan er sett á grill og notalegheit með fjölskyldunni auk þess sem ég ætla að skella mér á lokatónleika Listahátíðar í Reykjavík og sjá Terri Lyne Carrington sem er talin vera á meðal allra bestu djasstrommara heims.“ Hlusta má á tónlist DALÍ á Spotify og Soundcloud og fylgjast með fréttum og næstu tónleikum á facebook.
Airwaves Tónlist Mest lesið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist Fleiri fréttir Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira