Veiði

Lax-Á tryggir sér Leirvogsá frá 2017

Karl Lúðvíksson skrifar
Leirvogsá var í útboði nýlega og orðrómur var um að áin myndi líklega skipta um hendur eftir þetta tímabil.

Sá orðrómur er staðfestur með tilkynningu frá Lax-Á sem hefur samið um leigu á Leirvogsá frá 2017 til fjögurra ára.  Leirvogsá hefur notið mikilla vinsælda í mörg ár og hefur veiðin í henni oft verið geysilega góð á aðeins tvær stangir en áin hefur líka verið griðastaður þeirra sem vilja veiða á maðk.  Maðkveiði er þó víðast hvar á undanhaldi og verður svo einnig í Leirvogsá eins og tekið er fram í tilkynningunni frá Lax-Á og mun það líklega draga að fleiri veiðimenn sem eingöngu veiða á flugu.  Áin er enda mjög skemmtileg sem nett fluguveiðiá.  Fréttatilkynningin frá Lax-Á er svohljóðandi:

"Stangveiðifélaginu Lax-Á er ánægja að tilkynna undirritun samnings um leigu á Leirvogsá til fjögurra ára frá og með sumrinu 2017.

Leirvogsá hefur lengi skipað sér sess á meðal bestu laxveiðiáa Íslands og er meðalveiði á stöng þar með  því besta sem þekkist. Það er von okkar að á næstu árum nái hún að festa sig í sessi sem besta tveggja stanga á landsins.

Örlitlar breytingar verða gerðar á veiðitilhögun.

Frá og með sumrinu 2017 verður áin eingöngu veidd með flugu og sleppskylda verður á laxi yfir 70cm, hóflegur kvóti verður á smálax á stöng á dag.

Við bjóðum veiðimenn velkomna á bakka Leirvogsár sumarið 2017.

Stangveiðifélagið Lax-Á"






×