Martraðarendurkoma Söndru á gamla heimavöllinn | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2016 18:18
Stjarnan er áfram með tveggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-0 sigur á Val á Samsung-vellinum í Garðabæ í dag.Mörkin úr leiknum má sjá hér að ofan. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom Stjörnunni á bragðið á 23. mínútu með furðulegu marki. Harpa Þorsteinsdóttir sendi þá fyrir frá vinstri á Þórdísi sem var fyrir utan D-bogann. Þórdís átti að því er virtist hættulausan skalla að marki en Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals og fyrrverandi markvörður Stjörnunnar, misreiknaði sig illilega og boltinn hafnaði í netinu. Fjórum mínútum síðar var staðan orðin 2-0 eftir að Ana Victoria Cate skoraði af stuttu færi eftir að Harpa potaði boltanum til hennar. Aftur leit Sandra illa út í markinu en hún átti slæman dag á gamla heimavellinum. Eftir að hafa lagt upp tvö mörk í fyrri hálfleik skoraði Harpa þriðja mark Stjörnunnar á 81. mínútu. Donna Kay Henry sendi boltann fyrir frá vinstri og Harpa þrumaði honum í netið með vinstri fæti. Þetta var sjötta mark Hörpu í sumar en hún er markahæst í Pepsi-deildinni. Stjarnan er sem fyrr sagði á toppi deildarinnar en Valskonur, sem biðu sinn fyrsta ósigur í sumar, eru í 4. sæti með átta stig, fimm stigum á eftir Stjörnunni.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira