Verkin lofa Guðrúnu Margréti Pálsdóttur forsetaframbjóðanda Tryggvi Ólafsson skrifar 23. júní 2016 13:19 Fagna ber framboði Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur til forseta lýðveldisins. Guðrún er kona með stórt hjarta og full kærleika til alls sem lifir sem sést best af störfum hennar fyrir fátæka í þriðja heiminum. Guðrún er fulltrúi sjónarmiða sem áttu stóran þátt í að íslensk þjóð lyftist upp úr fátækt til bjargálna. Um aldamótin 1900 voru Íslendingar um 75 þúsund og talin fátækust þjóða Evrópu, þjóðin bjó að miklum náttúruauðlindum en skorti bæði þekkingu og tæki til að nýta þær. Alvarlegir sjúkdómar voru landlægir svo sem berklar og holdsveiki auk þess voru slys mjög tíð bæði á sjó og í landi sem hjuggu stór skörð og sviptu fjölskyldur lifibrauði og hamingju. Hve miklu hjálp útlendinga skipti hefur ekki verið nægur gaumur gefin, hátt á annað hundrað kaþólskar nunnur gáfu okkur starfsæfi sína á síðustu öld sem hjúkrunar og kennslukonur. Að baki hverrar nunnu stóðu margir stuðningsaðilar sem tóku þátt í að byggja sjúkrahús og skóla í Reykjavík, Hafnarfirði og Stykkishólmi. Ljóst er að mörgum mannslífum var bjargað og menntunarstig þjóðarinnar lyftist sem jók þrótt og dáð Íslendinga. Guðrún Margrét er hinn þakkláti Íslendingur sem vill að þjóðin breyti kjörum fátækra þjóða eins og okkur var hjálpað. Guðrún Margrét er ekki manneskja sem horfir á og lætur ranglæti og eymd viðgangast án afskipta. Hún er ein af stofnendum ABC barnahjálpar og launalaus framkvæmdastjóri til 23 ára. ABC hefur fáa launaða starfsmenn hér heima en tæp fimmta þúsund íslenskra stuðningsaðila sem eru í raun hin mikla vél starfsins. Hugsjón um menntun örfátækra barna í þriðja heiminum hefur breytt lífi tugþúsunda barna með því að stofna og reka skóla í 8 löndum. Fjöldi þeirra hafa lokið sveinsprófi sem iðnaðarmenn eða háskólaprófi svo áhrif þeirra í samfélaginu koma með að skipta miklu. Hvert barn sem fær stuðning til náms í barna og unglingaskóla á möguleika á góðri framtíð sér og afkomendum sínum til handa. Margir verða hissa á þegar þeim er bent á að með því að styrkja eitt barn er mjög líklegt að afkomendur þess verði að fjórum kynslóðum liðnum milli 200 til 250 læsir, jafnvel vel menntaðir. Öruggt er að úr hinum mikla fjölda sem íslendingar hafa stutt koma einn og einn mjög öflugur einstaklingur, sem breyta miklu fyrir samfélag sitt. Saga okkar geymir mörg dæmi um fátæka menn sem áttu varla önnur örlög en fátæktarbasl en fengu tækifæri til menntunar. Eitt glæstasta dæmið er Bjarni Sívertsen sem kallaður er faðir Hafnarfjarðar. Foreldrar hans voru fátækir, Bjarni fæddist 1763 í Nesi í Selvoginum. Hann kvæntist vel stæðri ekkju sem kenndi honum 20 ára lestur, skrift og reikning. Hann lagði til atlögu við dönsku kaupmennina og hóf verslunarrekstur og útgerð, einnig byggði Bjarni upp stærstu skipasmíðastöð landsins í Hafnarfirði. Skipin sem smíðuð voru í firðinum voru það stór að þeim var beitt á dýpri mið en landsmenn höfðu áður gert. Þegar hæst stóð hafði hann nokkur kaupskip í förum til Hafnar, Ítalíu og Spánar. Danski konungurinn heiðraði Bjarna með riddarakrossi Dannebrogsorðunnar sem var fáheyrt, fyrir að ná úr höndum ensk aðalsmanns og sjóræningja landsjóðnum. Bjarni sótti sjóðinn fyrir dómi í London. Thomas Gilpin var með víkingaleyfi og mátti samkvæmt því ræna eigum danska konungsins en Bjarni sá við honum og var kallaður Bjarni riddari frá því. Saga Bjarna er mikið ævintýri, ævintýri sem aldrei hefði orðið ef hann hefði ekki fengið menntun. Hann var hæfileikamaður á réttum stað og tíma. Kennsla Rannveigar konu hans bar háa rentu þjóðinni til gæfu við vitum ekki hversu margir „Bjarnar“ hafa orðið til vegna framlags frá Íslandi. Fæðingartíðnin er mikil í þriðja heiminum og algengt að hver kona eignist fleiri en 4 börn. Með því að veita barni menntun getur hver sem er ráðist að alvarlegri ógn mannkyns sem er offjölgun. Menntun eflir þjóðir og þær fjölga sér hægt eða jafnvel ekki. Með menntun er ráðist að mörgum mest aðkallandi vandamálum sem lífið á jörðinni stendur frammi fyrir. Guðrún er hæglát kona, þeir sem til þekkja vita að í raun er vegsemd hennar mest þar sem verk hennar standa. Árangur ABC barnahjálpar, SOS Barnaþorpa og Unicef er undur sem þjóðin ætti að vera stoltari af. Með því að kjósa Guðrúnu Margréti Pálsdóttur veitirðu brautargengi viðhorfum að löngu sé tímabært að launa fyrir hjálpina sem þjóðin hlaut þegar mest á þurfti. Hún mun beita sér á forsetastóli fyrir auknum náungakærleika ekki síður hér heima með því að hvetja til að fólk gefi af sér til fátækra því þeir eru líka meðal okkar á Íslandi. Við höfum heyrt að um 6000 íslensk börn líði skort, mannúð þarf að auka á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Maðurinn sem ég kynntist í löggunni Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson Skoðun Nýi Landspítalinn: klúður sem enginn þorir lengur að ræða Sigurður Sigurðsson Skoðun Halldór 31.01.26 Halldór Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon Skoðun Kæra heilbrigðisráðherra, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson skrifar Skoðun Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gott frumvarp en hverjir komast raunverulega að borðinu? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun María Rut og samkeppnishæfnin Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa það sem þarf Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kjósum mann sem klárar verkin! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg er ramminn, ekki málverkið Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Bærinn er fólkið Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Verðbólga á Íslandi er ekki slys – hún er afleiðing ákvarðana Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að læra af fortíðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Jaðardrengirnir okkar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Kristrún og Mazzucato Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Þegar alþjóðaviðskipti eru vopnvædd Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon skrifar Skoðun Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Stúka við Kórinn mun skera niður framtíð HK í fótbolta! Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Hlúum að hjarta skólans skrifar Skoðun Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfa börn að borga í strætó? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Flóttamannavegurinn er loksins fundinn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Ríkisborgararéttur – sömu reglur eiga að gilda fyrir alla Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður fyrir fólk á öllum æviskeiðum Helga Björg Loftsdóttir skrifar Skoðun 3,7 milljarða skattalækkun í Hafnarfirði Orri Björnsson skrifar Skoðun Nokkur orð um rekstrarkostnað Arnar Már Jóhannesson,Ásgerður Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB er (enn) ekki varnarbandalag Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Ekkert styður fullyrðingar um lélegan árangur af Byrjendalæsi Guðmundur Engilbertsson,Gunnar Gíslason,Jenný Gunnbjörnsdóttir,Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Ríkisborgararéttur – sömu reglur eiga að gilda fyrir alla Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Ekkert styður fullyrðingar um lélegan árangur af Byrjendalæsi Guðmundur Engilbertsson,Gunnar Gíslason,Jenný Gunnbjörnsdóttir,Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson skrifar