Rauði þráðurinn Ívar Halldórsson skrifar 20. júní 2016 21:01 Það eru fyrirmyndir sem móta okkar stefnu og hugmyndafræði í lífinu. Allir vilja líkjast einhverjum. Margar upprennandi knattspyrnuhetjur hafa t.d. tekið Ronaldo sér til fyrirmyndar hvað varðar leikskilning og tækni með boltann. Hjá sumum er hann eins konar átrúnaðargoð og þá þykir viðkomandi flest, ef ekki allt sem hann segir og gerir, meiriháttar svalt. En þótt sumir líki knattspyrnu við trúarbrögð, er sama hversu vel fólki tekst til við að haga sér eins og Ronaldo, mun hann þó aldrei geta veitt aðdáendum sínum himnavist eða eilíft líf sem ýmis kunn trúarbrögð heita hugheilum fylgjendum sínum. Það skiptir miklu máli að fólk finni sér góðar fyrirmyndir í lífinu - persónur sem láta þá helst gott af sér leiða og hvetja til góðra verka. Við sem erum foreldrar getum t.d. verið sammála um að við viljum ekki að börn okkar séu í slagtogi með krökkum sem stunda ólögmætt athæfi af einhverju tagi. Við viljum ekki að slæmar fyrirmyndir leiði þau á óæskilega braut í lífinu. Við gerum allt til að forða þeim frá því að feta einhverja glapstigu. Ég hef fylgst með fréttum af hryðjuverkum eins og margir aðrir, enda erfitt að leiða slíkar hörmungar hjá sér í dag. Skelfingin í Orlando var t.d. mikið reiðarslag fyrir okkur öll - ekki síst fyrir samkynhneigða. Í flestum slíkum fréttum er minnst á líkleg tengsl við íslamska öfgatrúarhópa - og yfirleitt reynist raunin vera sú eftir ítarlega rannsókn. Þegar hryllileg voðaverk færast í aukana fer maður að leita að einhverjum samnefnara – alveg eins og rannsóknarlögreglan gerir í C.S.I. þáttunum. Maður spyr sig, "Hvað tengir þessi ósköp saman? Hver er rauði þráðurinn? Í leynilögregluþáttunum er nánast aldrei sá fyrsti sem liggur undir grun sökudólgurinn. Hin augljósa niðurstaða er sjaldan sú sem heldur vatni. Sumir vilja meina að samnefnari árásanna sé slæm geðheilsa og þunglyndi árásarmanna. En það eru þó ekki aðallega múslimar sem glíma við þunglyndi og slæmt geð, þannig að sú skýring heldur vart vatni. Aðrir hafa lagt til að múslimar séu hinn sanni samnefnari og hafa haldið því opinberlega fram að allir múslimar séu þá stórhættulegir. Það er að mínu mati ósanngjarnt og með öllu óásættanlegt að halda slíku fram. Með slíkri alhæfingu og upphrópun er verið að beina spjótum að gríðarlega stórum hópi fólks, þar sem meirihlutinn reynir samviskusamlega að leggja sitt af mörkum til að byggja með okkur fjölbreytt samfélag, þar sem virðing og velferð ríkir. Það eru hlutfallslega langflestir múslimar friðelskandi. Sjálfur þekki ég múslima sem geisla af náungakærleika og mér þykir mjög vænt um. Hver er þá rauði þráðurinn? Ég tel líklegast að þeir sem voðaverkin fremja hljóti að eiga sér sameiginlega fyrirmynd, sem þeir sækja þá í trúarbrögð sín. Það er sð mínu mati ein skýring sem heldur vatni. Þeir sem þekkja mannkynssöguna vel vita að Múhameð spámaður var ekki þekktur fyrir frið og kærleika þegar hann fyrirskipaði, sögunni samkvæmt, morð á fjölda manns sem beygðu sig ekki undir hans boð. Þá þvingaði hann einnig fólk til að taka trú. Kristnir, gyðingar og trúleysingjar voru ekki öruggir á þeim svæðum sem hann réðst inná til að hertaka þjóðir til hlýðnis við sig. Slík hegðun virðist þó endurspeglast í verkum þeirra sem hrópa nafn Allah er þeir fremja voðaverk gegn þeim sem ekki eru fylgjendur spámannsins. Slíkir öfgar koma einnig fram í íslömskum trúarritum sem margir róttækir fylgjendur spámannsins taka bókstaflega á okkar tímum. Það er ljóst að margt varðandi hugmyndafræði spámannsins stangast algjörlega á við þær lýðræðislegu áherslur sem tryggja okkar vestræna menningarheimi öryggi og frelsi í dag. Rannsóknir sýna glöggt að meirihluti hryðjuverka í heiminum eru framin af róttækum fylgjendum Íslam. Friðlausustu lönd heims samkvæmt Global Peace Index eru Pakistan, Súdan, Afganistan, Sómalía og Írak - allt lönd sem aðhyllast róttækustu mynd Íslam, sem hvetur fylgjendur sína til að breiða út boðskapinn um alla veröld með góðu eða illu. Kristnir eru þá mest ofsóttir í íslömskum löndum samkvæmt opinberum rannsóknum. Nú er stöðugur straumur af flóttafólki frá þessum menningarheimi til Evrópu og sum nágrannalönd okkar kvarta undan vaxandi vanda tengdum íslömskum róttæklingum sem neita að aðlagast lýðræðislegum lögum landsins. Er ég nokkuð sá eini sem hef pínu áhyggjur af þessu? Í mörgum íslömskum löndum eru ströng lög við lýði. Samkynhneigð er víða dauðasynd, áfengisneysla er bönnuð og popptónlist fær ekki að hljóma. Konur hylja andlit sín í hlýðni við Íslam og réttindi kvenna eru vægast sagt ekki þau sömu og vestrænar konur njóta hér. Nýlegt dæmi má taka frá Istanbul. Þar gengu á dögunum 20 reiðir múslimar berserksgang í tónlistarverslun þar sem aðdáendur Radiohead voru saman komnir til að fagna útgáfu nýrrar plötu þeirra, og var þar áfengi haft um hönd. Þetta þótti mönnunum móðgun við Íslam; ekki síst vegna Ramadan hátíðarinnar sem gengin var í garð. Þarna er verið að þröngva öfgafullum trúargildum forníslamskrar menningar á frjálst fólk nútímans - líkt og Múhameð gerði forðum. Þótt við viðurkennum það ekki endilega opinberlega, þá vekja tíðar fréttir af reiðum og ofbeldisfullum öfgatrúarmönnum ugg hjá okkur flestum. En við erum hrædd við að fá "rasistastimpilinn" á okkur ef við höfum hátt um áhyggjur okkar og setjum spurningu við hverjum er hleypt inn í land okkar. Við þorum varla að hafa skoðun á þessu. Við forðumst því oftast að gagnrýna og verðum satt best að segja pínu meðvirk. Við þegjum og vonum það besta. Okkur er sagt að Íslam séu í alla staði friðsamleg trúarbrögð og við sannfærum okkur um að allar þessar árásir á lýðræði okkar séu alls ótengdar íslamskri bókstafstrú. Ef vel er að gáð beinast 52,7% Kóransins gegn þeim sem aðhyllast ekki trúarkenningar bókarinnar á mis vingjarnlegan hátt. Kóraninn er fremur torlesinn, en til að skilja hann betur er mælt með að lesa kafla hans í tímaröð. Þannig fær maður betri heildarmynd og lesturinn verður hnitmiðaðri. Múhameð virðist mjúkur til að byrja með, en hann verður stöðugt herskárri eftir því sem á líður. Trúlausir er litnir hornauga í Kóraninum og dylst það engum sem les bókina. Rannsóknir sýna þó að minnihluti múslima er bókstafstrúar; þ.e. þeir taka sér ekki það slæma sem Múhameð gerði til fyrirmyndar í nútímanum og eru ekki fylgjandi róttækustu lögum ritninganna og því ofbeldi sem stangast á við sjálfsögð lýðræðisleg réttindi. Áætlað er að aðeins 5% séu þannig róttækir múslimar. Vandinn er þó sá að vegna þess hversu margir múslimar eru í heiminum, eða um 1,5 billjón, verður fjöldi hinna róttæku um 750 milljónir, eða 2.142 sinnum fjöldi Íslendinga. Slíkur fjöldi getur haft gríðarleg áhrif ef einlæg von um himnavist, sem felst í heilögu stríði gegn trúlausum, knýr hann áfram. Ég álít að Íslam í sinni róttækustu mynd sé rökréttur samnefnari sem má ekki útiloka. Það hefur komið á daginn að margar moskur víða um Evrópu eru í dag í vaxandi mæli að leggja áherslu á Íslam í sinni tærustu og róttækustu mynd. Danskir blaðamenn afhjúpuðu nýlega slíka öfgakennslu með földum myndavélum í almennri mosku í Danmörku. Þetta varð til þess að danska þingið taldi brýnt að bregðast við til að fyrirbyggja ófrið og stjórnleysi sem því miður er orðið of ríkt í fjölmörgum hverfum í Evrópulöndum. Hið róttæka Íslam hefur varpað skugga á allan þann fjölda múslima sem styður fjölbreytileika, trúfrelsi, jafnrétti og um fram allt frið. Við þurfum að standa með múslimum sem hafna ofbeldi og kúgun hins róttæka Íslam sem reynir að færa okkar frjálsu menningu í fjötra. Til að sjá hvað drífur fólk áfram er upplýsandi að skoða fyrirmyndir þess og kanna hvað knýr það áfram. Við þurfum að finna rauða þráðinn - og klippa á hann áður en allt er orðið um seinan og.....KABÚMM! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Aðalmeðferð í dómsmáli um netsölu áfengis eftir 2 daga Siv Friðleifsdóttir Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir Skoðun Ég hlakka til Alexandra Briem Skoðun Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Dýraskólinn: þegar stöðluð próf eru blekking jafnréttis Ásgeir Jónsson Skoðun Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir Skoðun Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum Alma D. Möller skrifar Skoðun Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Ég hlakka til Alexandra Briem skrifar Skoðun Megum við fá bita, háttvirtur ráðherra? Katla Ósk Káradóttir skrifar Skoðun Barbabrella hægrisins í leikskólamálum Stefán Pálsson skrifar Skoðun Aðalmeðferð í dómsmáli um netsölu áfengis eftir 2 daga Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Kjarnorkuvopnavæðing Norðurlanda Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Móðurmálið er gjöf sem endist ævinlangt Guðbjörg Magnúsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar Skoðun Heyra heilbrigðisyfirvöld? Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Heyrnin tengir okkur Karen Ósk Gylfadóttir skrifar Skoðun Dýraskólinn: þegar stöðluð próf eru blekking jafnréttis Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verndum börn gegn ofbeldi á netinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Kynjajafnrétti forsenda þróunar og framgangs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað á unga fólkið að kjósa? Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson skrifar Skoðun Þegar Bítlakynslóðin verður gömul Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson skrifar Skoðun Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Eygló Harðardóttir skrifar Skoðun Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sterkara Austurland – saman, ekki sitt í hvoru lagi Erlendur Magnús Jóhannsson skrifar Skoðun Latína er list mæt Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar Sjá meira
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Skoðun Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Móðurmálið er gjöf sem endist ævinlangt Guðbjörg Magnúsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar
Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir skrifar
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun