Íslenska kvennalandsliðið í golfi tapaði naumlega, 3-2, gegn ríkjandi Evrópumeistaraliði Frakka á Evrópumóti áhugamanna sem fram fer á Urriðavelli.
Ísland endaði í B-riðli eftir höggleikskeppnina og eftir viðureignina í dag gegn Frökkum er ljóst að Ísland getur ekki endað ofar en í 13. sæti.
Ísland mætir Belgíu á morgun, föstudag, og sigurliðið úr þeirri viðureign leikur um sæti 13-14, en tapliðið um sæti 15-16
Anna Sólveig Snorradóttir og Berglind Björnsdóttir töpuðu 4/3 í fjórmenningsleiknum en þar leika tveir leikmenn saman í liði og slá einn bolta til skiptis.
Signý Arnórsdóttir vann sína viðureign 2/0 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir gerði það einnig en mótherji hennar forfallaðist og gaf viðureignina.
Ragnhildur Kristinsdóttir tapaði 4/3 og Sunna Víðisdóttir tapaði naumlega á 21. holu í gríðarlega spennandi viðureign.
