Tónlist

Berndsen komnir í pabbapoppið

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Berndsen lifir og hrærist í hljóðheimi níunda áratugarins.
Berndsen lifir og hrærist í hljóðheimi níunda áratugarins. Vísir
Ef einhver hélt á sínum tíma að Berndsen yrði að einnar slagara sveit þegar lagið Supertime sló í gegn árið 2009 þá hafði sá hinn sami verulega rangt fyrir sér. Nú er Berndsen kominn langt með að klára sína þriðju breiðskífu sem stefnt er á að komi út í haust. En honum vantar þína hjálp þar sem hefur stofnað til hópsöfnunar á Karolinafund eins og svo margir aðrir.

„Það virðist vera að þetta sé að verða eina leiðin til þess að gefa út plötu í dag,“ segir Davíð Berndsen. „Við vorum mjög feimnir við þetta en svo er þetta bara power to the people!"

Ha? Hér talar Davíð um Berndsen í fleirtölu. Hvað er eiginlega á seyði hérna? Er þetta ekki alveg örugglega sólóverkefni?

„Það eru svo margir sem koma að þessu. Hermigervill og Hrafnkell Gauti hafa alltaf verið með. Svo höfum við fengið alls konar aðstoðarmenn við upptökur. Þetta eru góðir vinir manns sem maður er að gabba í hitt og þetta.“

Sem sagt auðmjúkur í gegn hann Davíð. Skyldi vera einhver ástæða fyrir því? Einhverjar breytingar í lífinu sem lita upp hversdagsleikann?

„Ég gifti mig í fyrra og búinn að eignast barn þannig að maður er líka farinn að færa sig yfir í pabbapoppið. Þetta verður bara betra og betra.“

Það sama má segja um tónlistina eins og heyrist á titillagi nýju plötunnar Alter Ego sem hann sleppti frá sér í morgun. Staldrið við, hlustið og haldið svo áfram að lesa.

Högni er eins og Sting

Davíð lýsir tónlistinni á nýju plötunni sem fullorðinspoppi og segist vera undir miklum áhrifum frá tónlistarmönnum á borð við Brian Ferry, Mark Knopfler og Sting. Honum líður best í félagsskap annarra og á plötunni raðar hann í kringum sig góðu fólki til þess að leika og syngja.

„Ég er voðalega hrifinn af því að hafa kvenmenn með mér. Ég fékk Elínu Ey með mér í tvo lög og svo er systir Hermigervils Sigurlaug Thorarenssen sem er með gullbarka. Eitt sinn var Högni að labba fyrir utan stúdíóið mitt og fór fljótur að koma inn í sessjón. Hann hljómar eins og Sting í þessu eighties poppi.“

Hægt að panta sér einkatúr um Reykjavík með Berndsen

Í bráðskemmtilegu kynningamynbandi fyrir Karolina-söfnunina, sem auðvitað má sjá hér fyrir neðan, segir Davíð að vínyllinn sé helsta form tónlistarmanna í dag. Eru dagar geisladisksins að líða undir lok?

„Við erum að reyna lifa okkur í gömlu dögunum. Það er svo sjarmerandi að vera með vínylinn. Geisladiskurinn er eiginlega bara eins og nafnspjald í dag og það er erfitt að selja hann. Í dag hlusta allir bara í gegnum netið. Vínylsalan hefur verið bara nokkuð góð hjá okkur. Tónlistin hljómar vel af vínylnum hjá okkur.“

Stefnt er á að Alter Ego komi út í haust en þegar þetta er skrifað er Davíð rúmlega hálfnaður með að safna skilding fyrir útgáfunni. Kominn í 51% og 10 dagar eftir. Berndsen býður upp á ýmsa skemmtilega fylgikosti við söfnunina aðra en að fá forkaupa sjálfa plötuna. 

Þar má nefna gítartíma hjá Kela gítarleikara, klukkustund í hljóðverinu með Berndsen, einkatúr um Reykjavík og boð í grillaðan fisk.

Hér er svo kynningarmyndbandið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×