Embættismenn fá 7,15 prósent hækkun Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. júlí 2016 05:00 Stjórnarráðshúsið þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. Frá næstu mánaðamótum tekur gildi sérstök ákvörðun kjararáðs um laun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra stjórnarráðsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Laun allra sem undir kjararáð heyra hækkuðu 1. júní síðastliðinn um 7,15 prósent. Í úrskurði ráðsins er hækkunin sögð komin til vegna úrskurðar gerðardóms fyrir áramót um launakjör átján aðildarfélaga í Bandalagi háskólamanna (BHM). Við hækkunina verða allnokkrar breytingar á heildarlaunakjörum embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa sem undir ráðið heyra. Forseti Íslands er launahæsti þjóðkjörni einstaklingurinn með tæpar 2,48 milljónir króna í mánaðarlaun. Á eftir honum er forsætisráðherra með 1,6 milljónir, eftir tæplega 109 þúsund króna hækkun, og svo forseti Alþingis og aðrir ráðherrar sem eru með 1,49 milljónir króna í laun. Laun embættismanna sem ekki eru þjóðkjörnir breytast einnig. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er enn launahæsti embættismaðurinn með nær 2,1 milljónar króna mánaðarlaun. Fast á hæla Herði kemur Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, með rúmar tvær milljónir. Í þriðja sæti er Már Guðmundsson seðlabankastjóri, mánaðarlaun Más nema ríflega 1,9 milljónum króna.Frá mótmælum BHM og Félags hjúkrunarfræðinga við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu í verkfalli og kjaradeilu samtakanna við ríkið í fyrrasumar. Fréttablaðið/Pjetur Um næstu mánaðamót taka svo gildi sérstakar breytingar kjararáðs á kjörum ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra stjórnarráðsins. Laun þeirra voru síðast ákvörðuð árið 2005 og því liggja ekki fyrir upplýsingar um núverandi kjör þeirra á vef kjararáðs en hækkunin nemur allt að 37 prósentum að sögn RÚV. Eftir breytinguna verða heildarlaun ráðuneytisstjóranna hærri en laun ráðherra, eða rúmlega 1,8 milljónir króna á mánuði hjá ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins og yfir 1,7 milljónir hjá öðrum ráðuneytisstjórum. Laun skrifstofustjóra sem næst standa ráðuneytisstjóra fara í 1,3 milljónir. Aðrir skrifstofustjórar fá 1,2 milljónir. Ákvörðun um almennu hækkunina var tekin í kjararáði 9. júní síðastliðinn af Jónasi Þór Guðmundssyni, Huldu Árnadóttur, Óskari Bergssyni, Svanhildi Kaaber og Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni. Bent er á að í lögum um ráðið segi að það skuli taka mál til meðferðar þegar því þyki þurfa og ætíð ef orðið hafi verulegar breytingar á þeim launum í þjóðfélaginu sem höfð skulu til viðmiðunar samkvæmt lögunum eða á störfum þeirra sem úrskurðarvald þess tekur til. Bent er á að í úrskurði gerðardóms hafi verið ákvæði um að laun aðildarfélaga í BHM ættu að hækka um 5,5 prósent frá 1. júní síðastliðnum, auk þess sem þar hafi verið kveðið á um 1,65 prósenta framlag til útfærslu menntunarákvæða úrskurðarins og eftir atvikum annarra þátta í stofnanasamningum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016
Birtist í Fréttablaðinu Kjaramál Tengdar fréttir Kjararáð hækkar laun þjóðkjörinna og embættismanna Launin hækka um 9,3 prósent og er hækkunin afturvirk til 1. mars 2015. 19. nóvember 2015 18:30 Yfirvinnutaxti embættismanna hækkar um 14,3 prósent Auk þess að hækka laun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, um 24,6 prósent með sérstakri ákvörðun hefur kjararáð breytt viðmiðum yfirvinnugreiðslna. Við breytinguna hækka heildarmánaðarlaun annarra embættismanna sem undir ráðið heyra um nálægt þremur til rúmra sex prósenta. 31. desember 2015 07:00 Tekjur Íslendinga: Guðni Th. getur reiknað með ríflegri launahækkun Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og verðandi forseti, mun hækka verulega í launum þegar hann tekur við embætti forseta. 1. júlí 2016 08:08 Ráðherrar fá 100 þúsund króna hækkun "Það er mikið óréttlæti fólgið í þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um 9,3 prósent launahækkun þeirra sem heyra undir kjararáð. 20. nóvember 2015 07:00 Krefjast þess að hátekjuskattur verði settur á dómara Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega ákvörðun kjararáðs um laun dómara 6. janúar 2016 15:15 Hækkunin sú mesta síðan kjararáði var komið á fót Kjararáð tók við af Kjaradómi árið 2006 en samkvæmt úrskurði þess hækka laun ýmissa embættismanna um 9,3 prósent. Hækkunin er afturvirk frá 1. mars þessa árs. 19. nóvember 2015 22:30 Laun forstjóra leiðrétt afturvirkt Mánaðarlaun Arnórs Guðmundssonar, forstjóra Menntamálastofnunar, nema alls 1.125.701 krónu, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í mánuðinum. Ákvörðunin er afturvirk og gildir frá 1. október í fyrra. 28. maí 2016 07:00 Bjarni um kjararáð: „Þetta kerfi er handónýtt“ "Það þarf að henda þessu kerfi, það er bara ónýtt,“ sagði Bjarni Benediktsson sem vill endurskoða lög um kjararáð. 16. september 2015 11:09 Dómarar fá tuga prósenta launahækkun Störf dómara eiga sér ekki hliðstæðu á almennum vinnumarkaði. Tryggja verður sjálfstæði þeirra segir kjararáð. Kjör dómara eigi ávallt að vera meðal hinna bestu sem ríkisvaldið geti veitt. Hæstaréttardómarar hækka um 48 prósent 31. desember 2015 07:00 Fyrrverandi dómarar fá 26 prósent hækkun á eftirlaunum Kjararáð hækkaði heildarlaun dómara sérstaklega umfram aðra í desember með vísan í aukið álag og nauðsyn þess að efla trúverðugleika dómstóla. Vegna þessa hækka eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka þeirra um 26 prósent. 2. febrúar 2016 07:00 Álagsgreiðslurnar voru orðnar hluti launanna Ekki gefur rétta mynd af sérstakri endurskoðun kjararáðs á launum dómara í lok desember að horfa til launa þeirra fyrir breytingu án þess að taka tillit til álagsgreiðslna sem upphaflega áttu að vera tímabundnar. 7. janúar 2016 07:00 Kjararáð hækkar laun æðstu embættismanna ríkisins Hækkanir kjararáðs á launum æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa endurspegla hvernig árangur BHM í að fá menntun metna til launa hefur "smurst“ yfir á aðrar stéttir, að mati formanns BHM. 1. júlí 2016 09:23 Eftirlaun dómara hækkuðu alls um 38 prósent í fyrra Eftirlaun dómara hækkuðu um alls 38 prósent í fyrra með tveimur ákvörðunum kjararáðs. Meðalhækkun eftirlauna hjá ríkinu var 11,8 prósent . Sanngjörn og eðlileg hækkun, segir formaður Dómarafélagsins. 5. febrúar 2016 07:00 Forstjóri Landsvirkjunar launahæstur Gögn kjararáðs og Alþingis sýna að launagreiðslur til þingmanna og ráðherra fara í tæpar 713 milljónir króna á ári eftir ákvörðun um 9,3 prósenta hækkun. Þingmenn fá aukagreiðslur vegna nefndaforystu og búsetu. 26. nóvember 2015 07:00 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Kjararáð hækkar laun þjóðkjörinna og embættismanna Launin hækka um 9,3 prósent og er hækkunin afturvirk til 1. mars 2015. 19. nóvember 2015 18:30
Yfirvinnutaxti embættismanna hækkar um 14,3 prósent Auk þess að hækka laun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, um 24,6 prósent með sérstakri ákvörðun hefur kjararáð breytt viðmiðum yfirvinnugreiðslna. Við breytinguna hækka heildarmánaðarlaun annarra embættismanna sem undir ráðið heyra um nálægt þremur til rúmra sex prósenta. 31. desember 2015 07:00
Tekjur Íslendinga: Guðni Th. getur reiknað með ríflegri launahækkun Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og verðandi forseti, mun hækka verulega í launum þegar hann tekur við embætti forseta. 1. júlí 2016 08:08
Ráðherrar fá 100 þúsund króna hækkun "Það er mikið óréttlæti fólgið í þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um 9,3 prósent launahækkun þeirra sem heyra undir kjararáð. 20. nóvember 2015 07:00
Krefjast þess að hátekjuskattur verði settur á dómara Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega ákvörðun kjararáðs um laun dómara 6. janúar 2016 15:15
Hækkunin sú mesta síðan kjararáði var komið á fót Kjararáð tók við af Kjaradómi árið 2006 en samkvæmt úrskurði þess hækka laun ýmissa embættismanna um 9,3 prósent. Hækkunin er afturvirk frá 1. mars þessa árs. 19. nóvember 2015 22:30
Laun forstjóra leiðrétt afturvirkt Mánaðarlaun Arnórs Guðmundssonar, forstjóra Menntamálastofnunar, nema alls 1.125.701 krónu, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í mánuðinum. Ákvörðunin er afturvirk og gildir frá 1. október í fyrra. 28. maí 2016 07:00
Bjarni um kjararáð: „Þetta kerfi er handónýtt“ "Það þarf að henda þessu kerfi, það er bara ónýtt,“ sagði Bjarni Benediktsson sem vill endurskoða lög um kjararáð. 16. september 2015 11:09
Dómarar fá tuga prósenta launahækkun Störf dómara eiga sér ekki hliðstæðu á almennum vinnumarkaði. Tryggja verður sjálfstæði þeirra segir kjararáð. Kjör dómara eigi ávallt að vera meðal hinna bestu sem ríkisvaldið geti veitt. Hæstaréttardómarar hækka um 48 prósent 31. desember 2015 07:00
Fyrrverandi dómarar fá 26 prósent hækkun á eftirlaunum Kjararáð hækkaði heildarlaun dómara sérstaklega umfram aðra í desember með vísan í aukið álag og nauðsyn þess að efla trúverðugleika dómstóla. Vegna þessa hækka eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka þeirra um 26 prósent. 2. febrúar 2016 07:00
Álagsgreiðslurnar voru orðnar hluti launanna Ekki gefur rétta mynd af sérstakri endurskoðun kjararáðs á launum dómara í lok desember að horfa til launa þeirra fyrir breytingu án þess að taka tillit til álagsgreiðslna sem upphaflega áttu að vera tímabundnar. 7. janúar 2016 07:00
Kjararáð hækkar laun æðstu embættismanna ríkisins Hækkanir kjararáðs á launum æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa endurspegla hvernig árangur BHM í að fá menntun metna til launa hefur "smurst“ yfir á aðrar stéttir, að mati formanns BHM. 1. júlí 2016 09:23
Eftirlaun dómara hækkuðu alls um 38 prósent í fyrra Eftirlaun dómara hækkuðu um alls 38 prósent í fyrra með tveimur ákvörðunum kjararáðs. Meðalhækkun eftirlauna hjá ríkinu var 11,8 prósent . Sanngjörn og eðlileg hækkun, segir formaður Dómarafélagsins. 5. febrúar 2016 07:00
Forstjóri Landsvirkjunar launahæstur Gögn kjararáðs og Alþingis sýna að launagreiðslur til þingmanna og ráðherra fara í tæpar 713 milljónir króna á ári eftir ákvörðun um 9,3 prósenta hækkun. Þingmenn fá aukagreiðslur vegna nefndaforystu og búsetu. 26. nóvember 2015 07:00