Undir vélarhlífinni á Clubsport er fjögurra sýlindra, tveggja lítra forþjöppu bensínvél með beinni innspýtingu sem skilar 265 hestöflum. Hámarkshraðinn er 250 km/klst. og hann er í 5,9 sekúndur í hundraðið. Ekki nóg með það heldur er vélin útbúin „overboost“ búnaði sem eykur kraftinn upp í 290 hestöfl í allt að 10 sekúndur.
Golf GTI Clubsport er ekki aðeins með meira afl undir húddinu heldur hafa fjöðrunin og loftmótstaðan verið endurbætt. Með hlutum eins og vindkljúfi á þakinu og breyttum framstuðara næst meiri niðurkraftur og þar af leiðandi eykst stöðugleiki og veggrip þannig að Golf GTI Clubsport nær miklum stöðugleika á miklum hraða og í hröðum beygjum.
Það sem aðgreinir ytra útlit Clubsport frá hefðbundnum Golf GTI er framstuðarinn sem skartar aukaflipum á sitt hvorri hliðinni, öðruvísi hliðarsvuntur, breytt lögun á vindkljúfi á þaki og svunta sem er innbyggð í afturstuðarann. Svörtu skreytingarnar á hliðunum er vísun í upphaflega Golf GTI frá 1976 og svarta þakið og hliðarspeglarnir gefa Clubsport yfirbragð kappakstursbíls.
18 tommu álfelgur setja svo punktinn yfir i-ið. Að innan skartar Clubsport vandaðri hönnun. Sportsætin eru að hluta til klædd Alcantara-leðri og köflóttu mynstri og GTI merkið er saumað í höfuðpúðana.

