Nýjar tölur úr laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 21. júlí 2016 13:03
Landssamband Veiðifélaga birti nýjar vikutölur úr laxveiðiánum í morgun og það er heldur sorglegt að sjá tölurnar úr sumum ánum. Ytri Rangá heldur toppsætinu enda er veiðin þar búin að vera mögnuð frá opnun og er hún langaflahæst ánna með 2.549 laxa og vikuveiði uppá 829 laxa. Það er engu að síður orðið greinilegt að árið stefnir í að verða undir meðallagi víðast hvar að Rangánum undanskildum og ástæðan er sú að lítið af nýjum laxi eru að koma inn þrátt fyrir að stórstraumur sé í dag. Það má vel vera að það komi inn eitthvað slangur en reynslan sýnir að þegar svona langt er liðið á tímabilið eru sáralitlar líkur á stórum göngum í árnar. Sumar árnar búa ágætlega að því að hafa fengið stórar göngur snemma sumars en það er samt skrítið fyrir veiðimenn að standa við bakkana og kasta á legna laxa og sjá varla lúsuga fiska lengur í ánum. Á þessum tíma eiga þeir að vera góður hluti af aflanum og takan að vera góð en það er bara ekki þannig. Veiðimenn lýsa þessu helst á þann veg eins og það sé verið að veiða árnar um miðjan ágúst en það er þekkt að takan dettur oft niður á því tímabili og þá sérstaklega á vesturlandi. Takan á vesturlandi hefur verið afar döpur í mörgum ánum í vikunni samkvæmt fréttum frá veiðimönnum þrátt fyrir að flugum sé kastað á torfur í sumum hyljunum. Það er þó eitt gott í þessu þar sem ágætt magn af laxi er að finna að takan tekur venjulega góðan kipp síðsumars en miðað við tíðina er síðsumarsveiðin að koma svolítið snemma þetta árið. Staðan á tíu efstu ánum er hér fyrir neðan en listann má finna í heild sinni hér. Ytri Rangá 2549 Eystri Rangá 1633 Blanda 1492 Miðfjarðará 1459 Þverá/Kjarrá 1153 Norðurá 880 Haffjarðará 704 Langá 623 Laxá í Aðaldal 517 Víðidalsá 425
Mest lesið Flottasta RISE hátíðin hingað til Veiði Flekkudalsá til SVFR Veiði Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní? Veiði Fyrsta hollið í Blöndu með 23 laxa Veiði Bubbi lét húðflúra laxaflugu á handlegginn Veiði Sumarhátíð SVFR haldin næsta laugardag Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Mokveiði í Frostastaðavatni Veiði Miðfjarðará aflahæst sjálfbæru ánna Veiði 243 laxar komnir á land í Selá Veiði