Rapparinn KÁ AKÁ hefur á hálfu ári verið að koma sér á kortið sem bjartasta von norðlenska hiphopsins. Hann kemur frá Akureyri og gefur í kvöld út sitt fimmta lag Vaknaðu við tölvuskreytt myndband leikstjórans Jóns Þórs Sigurðssonar.
Lagið má sjá og heyra hér fyrir ofan.
Senan á Akureyri að lifna við
Hér er algjörlega um norðlenska afurð að ræða þar sem allir sem komu að laginu er úr hiphop-senunni á Akureyri sem vaknar nú til lífsins aftur eftir dvala. Hér koma bæði nýgræðingar og vanir menn við sögu því tónlistina gerir enginn annar en Toggi Nolem, liðsmaður Skyttanna.
„Ég er að reyna halda hiphoppinu gangandi hér á Akureyri,“ segir KÁ AKÁ sem heitir Halldór Kristinn Harðarson réttu nafni. „Það eru góðir rapparar sem hafa komið frá Akureyri. Skytturnar, Kött Grá Pjé og fleiri. Það hefur þó ekki verið að gerast mikið undanfarið og nú ætlum við að reyna keyra þetta í gang. Eftir að ég keyrði í gang hafa margir hér haft samband og spurt hvernig þeir eigi að fóta sig í þessu og ég reyni að hjálpa til.“
Meira fyrir gymmið en róró
Halldór gaf út sitt fyrsta lagið sitt Kaflaskipti (minn eigin Guð) í byrjun árs og hefur verið nær óstöðvandi síðan. Umfjöllunarefni hans er ekkert endilega eins og heyrist í flestum hiphopp-lögum. Eins og aðrir fjallar hann um sinn eigin raunveruleika sem þó er hugsanlega öllu stilltari til hófs en hjá mörgum öðrum þekktum röppurum landsins. Í nýjasta laginu eru til dæmis mörg „lyf“ nefnd á nafn en þar má telja, D-vítamín, lýsi og nór-adrenalín. Þar heyrist kannski að Halldór er meira fyrir gymmið en róró.
„Ég er líka að fikta við jiu jittsu og MMA. Ég er svona 70% íþróttamaður og 30% djammari. Ég held fast í það og æfi oft í viku. Ég vil nú samt samtvinna þetta bæði en ég hef bara ekkert efni á því að vera rappa um dóp og peninga. Ég djamma alveg eitthvað en það er ekki aðalmálið hjá mér.“
KÁ AKÁ hitar upp fyrir tónleika Emmsjé Gauta á Græna hattinum um helgina.
KÁ AKÁ: Bjartasta von norðlenska rappsins gefur út Vaknaðu
Tengdar fréttir

Sífellt meiri tengsl rapps og íþrótta
Skilin á milli tónlistar og íþrótta verða sífellt óskýrari, sér í lagi þegar rapparar eiga í hlut. Vinskapur hefur skapast milli fremstu íþróttamanna landsins og helstu rappara þjóðarinnar. Vísir leiðir lesendur í gegnum sögu tengslanna með tilheyrandi tónaveislu.

Platan verður óður til aldamótarapparanna
Meðal gestarappara verða Cell 7, Kött Grá Pjé og 7Berg.

Kött Grá Pjé toppaði á þrítugsafmælinu
Akureyski rapparinn nær nýjum hæðum með sumarslagaranum Aheybaró.