Skoðun

Framsókn og verðtryggingin

Elsa Lára Arnardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson skrifar
Framsóknarflokkurinn hefur verið skýr í afstöðu sinni til verðtryggingar, að hana beri að afnema af neytendalánum.  Öll sáum við hversu mikil áhrif verðtryggingarinnar voru í hruninu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar varði hag sparifjáreigenda en gætti ekki að þeim sem fjárfest höfðu í eignum, en fasteign er sú sparnaðarleið sem flestir kjósa fyrir verðtryggt lánsfé. Flestir þekkja framhaldið. 

Í fréttum undanfarið hefur heyrst að draga skuli úr vægi verðtryggingar og að ekki sé hægt að afnema verðtrygginguna með einu pennastriki. Það þurfi að gera í skrefum. Þess vegna er mikilvægt að leggja fram trúverðuga og tímasetta áætlun um hvert skref sem taka skal á og hvaða leiðir unnt er að fara í þeim efnum. Það þarf að ganga hratt og vel fyrir sig.

Nú er unnið að tillögum sem eiga að draga úr vægi verðtryggingar. Þær tillögur hafa eingöngu verið gróflega kynntar fyrir þingflokki Framsóknar. Þessar tillögur ná aðeins til ákveðins hóps og efumst við ekki um að það verði til mikilla bóta fyrir þann hóp. En við, ásamt fleirum höfum sett fyrirvara við þau drög og er ástæðan sú að við sjáum ekki hvernig koma eigi á móts við þá tugþúsundir sem nú þegar eru með verðtryggð lán.

Endanlegar tillögur hafa ekki verið kynntar í ríkisstjórn né þingflokki Framsóknarmanna. Ef að þessar tillögur eru „góðar“ þá er ekki útilokað að um þær náist sátt. Mikilvægt er þó að um leið séu næstu skref kynnt að fullu afnámi verðtryggingar af neytendalánum. 

Ýmsar hugmyndir hafa verið settar fram um hvernig „draga megi úr vægi verðtryggingar“ þannig að slíkt lánsform verði að minnsta kosti ekki í boði af húsnæðislánum. Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram eru m.a. að

 

  • setja þak á verðtryggingu þannig að lántaki og lánveitandi skipti með sér áhættu. Þannig að ef verðbólgan fer yfir ákveðna prósentu þá taki lánveitandi á sig áhættuna umfram það.
  • að gera breytingar á útreikningi verðbólgu og verðtryggingar þannig að framvegis verði notuð samræmd vísitala neysluverðs (SVN) í stað vísitölu neysluverðs (VNV). Þannig væri húsnæðisþáttur tekinn út úr vísitölunni. Þingmál þessa efnis hefur verið lagt fram af þingmönnum Framsóknarflokksins en ekki fengið afgreiðslu: https://www.althingi.is/altext/145/s/1069.html 
  • að setja takmarkanir á fjölda þeirra verðtryggðu lána sem lánastofnanir geta átt. En það er nú svo að verðtryggðu lánasöfn/eignasöfn bankanna aukast verulega þegar verðbólga fer af stað. Það verður eignatilfærsla frá heimilum landsins til fjármálastofnanna. Það verður að stöðva.
  • að breyta útreikningi verðtryggðra lána þannig að breytingar á vísitölu reiknist á og greiðist af hverjum gjalddaga fyrir sig en ekki höfuðstól. Þannig komum við í veg fyrir þau snjóboltaáhrif sem verðtryggingin hefur á lánasöfn.
 

Þegar þetta er ritað höfum við ekki heyrt hvort þessar hugmyndir eða aðrar hafi verið skoðaðar. Það er nauðsynlegt að skoða allar hugmyndir um að „minnka enn frekar vægi verðtryggingar“ ef það er ekki meirihluti fyrir því í þinginu að afnema verðtryggingu með öllu.

Við höldum áfram að tala fyrir því að afnema beri verðtryggingu af neytendalánum. Það er ekkert sanngjarnt við það að lántakendur, það eru heimili landsins, beri ein þá áhættu sem felast í verðtryggðu lánaformi.

Elsa Lára Arnardóttir

Gunnar Bragi Sveinsson

Höfundar eru þingmaður og ráðherra Framsóknarflokksins.

 




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×