Nýjar vikutölur úr laxveiðinni Karl Lúðvíksson skrifar 18. ágúst 2016 09:00
Landssamband Veiðifélaga birti nýjar tölur úr laxveiðiánum í gærkvöldi og þar sést vel gífurlegt forskot Ytri Rangár. Veiðin í Ytri Rangá er búin að vera frábær í allt sumar og vikuveiðin í síðustu viku frá miðvikudegi til miðvikudags, en það er viðmiðunartíminn, er samtals 803 laxar og setur heildarveiðina í ánni í 5.467 laxa. Miðfjarðará er komin í 3.005 laxa og veiðin þar liðinni viku var 339 laxar. Haffjarðará var sjöunda áin til að fara yfir 1.000 laxa og veiðimenn sem voru að koma úr henni fyrir fáum dögum sögðu að það væri gaman að sjá hversu mikið af stórlaxi væri í ánni sem er þá í takt við aðrar ár á landinu en þetta aukna hlutfall stórlaxa hefur verið mjög áberandi í lang flestum ánum í allt sumar. Það er farið að styttast í að fyrstu árnar loki fyrir veiði en það gerist núna í fyrstu vikunni í september. Rangárnar eru opnar til loka október svo þar á veiðin ennþá eftir að hækka. Það er líka alveg á hreinu að nokkrar ár eiga mikið inni en veiðin þeim ám sem hafa verið mjög vatnslitlar gæti tekið, og á eftir að taka, mikin kipp í fyrstu alvöru haustrigningunni þegar árnar hækka mikið og jafnvel litast aðeins. Hér fyrir neðan er topp tíu listinn af vefsíðu LV en listann í heild sinni má finna hér. Ytri Rangá - 5.376 Miðfjarðará - 3005 Eystri Rangá - 2627 Blanda - 2217 Þverá/Kjarrá - 1567 Norðurá - 1130 Haffjarðará - 1040 Langá - 963 Laxá í Aðaldal - 862 Laxá í Dölum - 801
Mest lesið Eystri Rangá komin í 2.050 laxa Veiði Miðfjarðará opnaði með 30 laxa holli Veiði Fluga dagsins: Góð í urriðann Veiði Þegar örflugurnar gefa best Veiði Ekkert að frétta úr Vífilsstaðavatni Veiði Kaldakvísl farin að gefa vænar bleikjur Veiði 197 laxar gengnir í gegnum teljarann í Langá á Mýrum Veiði Laxar farnir að sýna sig í ánum Veiði Langskeggur er málið Veiði Brúará er komin í gang Veiði