
Og þér finnst það ekkert í góðu lagi
Kvótakerfið er skattheimta
En kvótagreifarnir fá ekkert að vera með í þeim makindum. Því að kvótakerfið finnst okkur alls ekki vera í góðu lagi. Þetta er frekar einfalt: „skiliði kvótanum aftur til þjóðarinnar“.
Skáldið og söngvarinn fangar það í orð sem svífur um í blænum ekki síst þegar sviðið er í þann veginn að fyllast af vörpulegum Vestfirðingum.
Um hvað snýst kvótakerfið? Takmarkaðan aðgang að takmörkuðum gæðum. Það þurfti að draga úr ofveiði og það þurfti að hagræða í greininni eftir full rösklega uppbyggingu í kjölfar útfærslu landhelginnar þegar ekki var þingmaður með þingmönnum, að hann gæti ekki skaffað svo sem eins og einn skuttogara. En þess var ekki gætt að sú hagræðing yrði eins sársaukalítil og hægt væri og að samfélagið allt nyti góðs af þeirri hagræðingu. Um það var ekkert hirt.
Kvótakerfið er hlið sem sumum er hleypt inn um, öðrum ekki. Og þeir sem fengu að fara inn selja hinum aðgang. Kvótakerfið er skattheimta nema andvirðið rennur ekki í sameiginlega sjóði landsmanna. Kvótakerfið og „frjáls“ viðskipti með réttinn til að nýta þjóðareignina hefur í för með sér frelsisskerðingu fyrir venjulegt fólk að sækja sjóinn nema með því að greiða skatt til kvótagreifa sem geyma svo þennan skatt af sameign þjóðarinnar í leynihólfum heimsins og nota hann til að kaupa sér forréttindi og séraðgang að því sem ætti að vera almannaeign – og að borga Davíð Oddssyni tvær milljónir á mánuði til að skrifa skringilegar greinar.
Kvótakerfið hafði mikið að segja um bóluna á árunum upp úr aldamótum: Með kvótakerfinu fylltist allt af peningum sem voru ekki til, frá mönnum sem höfðu aflað þeirra með því að selja og veðsetja það sem þeir áttu ekki: fisk sem ekki var búið að veiða.
Það er eins og ef ég, sem hef skrifað nokkrar bækur, rukkaði unga höfunda fyrir að fá að skrifa bók. Það væri nú ekki í góðu lagi.
Enginn samfélagssáttmáli
Það verður ekkert jafnvægi í þjóðarsálinni – og hvað þá í þjóðarbúskapnum – fyrr en þjóðin fær almennt þá tilfinningu að snúið hafi verið af braut þessarar einkaskattheimtu. Í kvótakerfinu er að finna undirrót hins eilífa ósættis sem ríkir hér á landi. Við gleðjumst yfir því þegar Gugga og Binni verða rík af útgerð og fiskvinnslu – en hví skyldum við samgleðjast þegar Mummi sonur þeirra selur kvótann sem bundinn er útgerð þeirra fyrir trilljónir út úr bænum og flytur til London að gerast þar gjálífismaður; skilur gamla plássið sitt eftir í sárum, fólkið sem sjóinn hafði sótt og fiskinn verkað, en geymir auð sinn á aflandseyjareikningi? Hvað er það nákvæmlega við framferði Mumma (sem við þekkjum af ótal sögum) sem ætti að vekja virðingu en ekki forakt?
Þeir eru alltaf biðja um sátt ráðherrarnir (ljótt orð: það fyrsta sem íslensk yfirstétt gerði þegar við fengum heimastjórn 1904 var að breyta orðinu „ráðgjafi“ í „ráðherra“ – við ættum að breyta því aftur). Maður heyrir þá stundum kalla eftir því að hér sé gerður nokkurs konar samfélagssáttmáli um kaup og kjör, velferðarstig og tillitssemi hinna lægra launuðu við þörf hástéttanna fyrir ró og næði. Frið á vinnumarkaði. Jafnvægi. Hófsemi. Það er eins og ef maður í íbúð fyrir ofan mig væri með partílæti allar nætur en kæmi svo til mín og bæði mig að hafa ekki hátt, því hann langaði að fara að stunda jóga.
Það fyndist manni nú ekki í góðu lagi. Það verður engin sátt fyrr en við fáum á tilfinninguna að afrakstrinum af þessari sameiginlegu auðlind sé skipt af réttlæti. Sem er að vísu vandmeðfarið hugtak – hugsjón en ekki ástand – og vei þeim stjórnmálamönnum sem telja sig vita hvar endastöð réttlætisins sé að finna – en það gæti til dæmis náð til þess að sanngjarn hluti af sjávarútvegsgróðanum renni til uppbyggingar í þeim byggðum sem lifað hafa af sjávarútvegi mann fram af manni en hafa af völdum þessa kerfis mátt sjá sjálfa lífsbjörgina hverfa í hendur braskara sem kaupa sér bílaumboð í Reykjavík í morgunmat.
Það gæti til dæmis náð til þess að fólk fengi á tilfinninguna að sanngjarn hluti af arðinum af auðlindinni renni til þess að byggja upp innviði samfélagsins sem látnir hafa verið markvisst grotna niður af stjórnmálaarmi þeirra afla sem stefna að samfélagi þar sem þeir ríku geta keypt sér aðgang að sérþjónustu í heilbrigðis- og menntamálum.
Þetta er frekar einfalt. Það verður enginn friður, engin sátt, enginn sáttmáli fyrr en þann dag er hinn almenni Íslendingur getur horft á sjávarútveginn, alla þá miklu verðmætasköpun sem þar er, hugvitið allt og dugnaðinn, og fundið til örlítils votts af stolti, kinkað kolli með sjálfum sér og fundist það í góðu lagi.
Skoðun

Þeir vökulu og tungumálið sem stjórntæki
Jóhanna Jakobsdóttir skrifar

Umburðarlyndi og kærleikur
Snorri Ámundsson skrifar

Kolbrún og Kafka
Pétur Orri Pétursson skrifar

Brottvísanir sem öllum var sama um
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Mamma er gulur góð einkunn?
Díana Dögg Víglundsdóttir skrifar

Gervigreind í vinnunni: Frá hamri til heilabús
Björgmundur Guðmundsson skrifar

Engu slaufað
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Faglegt mat eða lukka? II. Viðurkenning og höfnun
Bogi Ragnarsson skrifar

Krabbameinsfélagið í stafni í aðdraganda storms
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Lénsherratímabilið er hafið
Einar G Harðarson skrifar

Þéttur eða þríklofinn Sjálfstæðisflokkur
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Bras og brall við gerð Brákarborgar
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Getur uppbyggilegur fréttaflutningur aukið velsæld í íslensku samfélagi?
Ása Fríða Kjartansdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar

„Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Ósk um sérbýli, garð og rólegt umhverfi dregur fólk frá höfuðborgarsvæðinu
Margrét Þóra Sæmundsdóttir skrifar

Auðlindarentan heim í hérað
Arna Lára Jónsdóttir skrifar

Héraðsvötn og Kjalölduveitu í nýtingarflokk
Jens Garðar Helgason,Ólafur Adolfsson skrifar

Eru borgir barnvænar? Þétting byggðar og staða barna í skipulagi
Lára Ingimundardóttir skrifar

Hvað kosta mannréttindi?
Anna Lára Steindal skrifar

Faglegt mat eða lukka? I: Frá kennslustofu til stafbókar
Bogi Ragnarsson skrifar

Hvers vegna ekki bókun 35?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

1 stk. ísl. ríkisborgararéttur - kr. 1,600
Róbert Björnsson skrifar

Ný nálgun fyrir börn með fjölþættan vanda
Guðmundur Ingi Þóroddsson,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Setjum kraft í íslenskukennslu fullorðinna
Anna Linda Sigurðardóttir skrifar

Áhrif veiðigjalda ná út fyrir atvinnugreinina
Ásgerður Kristín Gylfadóttir skrifar

Við stöndum með Anahitu og Elissu
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson skrifar

RÚV - ljósritunarstofa ríkisins?
Birgir Finnsson skrifar

Að vera hvítur og kristinn
Guðbrandur Einarsson skrifar

Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð – loksins orðin að veruleika
Anton Guðmundsson skrifar