Kungsang rekur veitingastaðinn Ramen Momo við Tryggvagötu, hann er fæddur og uppalinn í Tíbet en fluttist til Íslands fyrir tæpum sex árum. Hann býr í miðborg Reykjavíkur með eiginkonu sinni Ernu Pétursdóttur og tveimur börnum þeirra.
Matreiðsla, myndlist og íhugun eru ástríða Kungsangs. Hann fór í sumar í núðluskóla í Osaka í Japan. „Að sjóða núðlur og laga núðlusoð er sérstakt listform, á námskeiðinu lærði ég þessa list,“ segir Kungsang sem vill bjóða Íslendingum upp á alvöru ramen núðlusúpur.

Búddistar nota mandölur í hugleiðslu til að skerpa meðvitund sína og koma á jafnvægi líkama og sálar. Önnur bóka Kungsangs er með íslenskum mandölum. Í stað austurlenskra þema má sjá íslensk kennileiti, dýr og náttúru.
Hann nam þessa list í klaustrum í Nepal og í Dharamshala á Indlandi. „Ég var sendur fjórtán ára gamall í nám, fór fyrst til Nepals og þaðan til Indlands. Þetta var fimm ára nám og ferðalag,“ segir Kungsang frá.
Í klaustri í Tsuklakhang hitti hann eiginkonu sína. „Hún kom til klaustursins sem sjálfboðaliði og vann við þýðingu texta. Við fluttum fyrst til Spánar og svo hingað til Íslands,“ segir Kungsang um það hvernig örlögin leiddu hann hingað.
„Ég féll fyrir fegurðinni. Ég byrjaði að vinna á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Seinna vann ég á veitingastöðum í Reykjavík og eldaði mat í leikskóla,“ segir Kungsang sem lagði hart að sér við það að stofna sitt eigið litla fyrirtæki. „Ég kann mjög vel við að vera í sjálfstæðum rekstri og ráða sjálfur áherslum,“ segir hann.