Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji og Kimi Raikkonen á Ferrari fjórði. Rosberg minnkaði forksot Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í tvö stig. Spennan magnast í heimsmeistaramótinu.
Rosberg stal forystunni af Hamilton í ræsingunni. Hamilton hrapaði raunar niður í sjötta sæti á leiðinni inni í fyrstu beygju. Vettel og Raikkonen áttu afar góða ræsingu. Vettel náði að ógna Rosberg mikið á fyrstu metrunum.
Rosberg sleit sig svo frá Vettel. Á meðan fór Hamilton hratt fram úr Daniel Ricciardo til að ná fimmta sætinu.
Á meðan lentu Jolyon Palmer á Renault og Felipe Nasr á Sauber saman og Nasr snérist. Nasr hætti svo keppni skömmu seinna.
Bottas var næstur á undan Hamilton. Heimsmeistarinn fékk ekki að sigla auðveldlega fram úr. Hamilton komst fram úr Finnanum á 11 hring.
Hamilton varð annar þegar Ferrari bílarnir tóku þjónustuhlé. Hamilton hóf að sækja á Rosberg. Bilið var um 14 sekúndur þegar Ferrari menn fóru inn.

Staðan eftir að fremstu menn höfðu tekið þjónustuhlé var Rosberg, Vettel, Raikkonen og svo Hamilton í fjórða sæti.
Pascal Wehrlein var sagt að stoppa Manor bílinn um miðbik keppninnar. „Við þurfum að stöðva bílinn strax. Stöðvaðu bílinn og dreptu á honum,“ voru skilaboðin sem Wehrlein fékk.
Vettel tók svo sitt annað þjónustuhlé á hring 34. Hann fékk mjúk dekk undir og Raikkonen fylgdi svo í kjölfarið á næsta hring og fékk einnig mjúk dekk undir.
Rosberg sigldi auðan sjó alla keppnina og hitti raunar engann fyrir nema hægfara bíla sem hann fór snyrtilega fram úr.
Hamilton læsti dekkjum á leiðinni í fyrstu beygju. Hann tapaði rúmlega einni og hálfri sekúndu á því. Lokahringir keppninnar voru rólegir og lítið sem gerðist.