Veiði

Nýjar vikutölur úr laxveiðinni

Karl Lúðvíksson skrifar
Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum voru birtar á miðvikudagskvöldið á heimasíðu Landssambands Veiðifélaga.

Það heldur áfram þetta ástand sem hefur einkennst af vatnsleysi og sólríkum dögum og þetta tvennt gerir veiðimönnum afar erfitt fyrir.  Það er sem fyrr Ytri Rangá sem er aflahæst í vikunni sem leið og aflahæst þegará heildina er litið með 6.309 laxa en vikuveiðin í henni var 431 lax.  Miðfjarðará er næst bæði í heildarveiði sem og vikuveiði en heildarveiðin í henni er komin í 3.503 laxa með vikuveiði uppá 216 laxa.  Veiðivísir spáði Ytri í 9.000 laxa og Miðfjarðará í 4.000 laxa svo það lítur út fyrir að sú spá verði nærri lagi.

Það er annars lítil breyting á vikuveiði að öðru leiti en að í nokkrum ánum dregst hún saman sem er eðlilegt fyrir árstíma en annars staðar er talan að detta niður vegna sífelldra þurrka sem eru orðnir þeir lengstu í áratugi.  Árnar á vesturlandi eru að detta hratt niður i vatni og ekki var nú mikið vatn fyrir í flestum þeirra.  Það sárvantar rigningu og eins og staðan er gæti einhver væta fallið í næstu viku en hvort það verði nóg til að breyta einhverju kemur bara í ljós.  Hér fyrir neðan er topp 10 listinn yfir árnar og listann í heild sinni má finna á www.angling.is



Ytri Rangá - 6.309

Miðfjarðará - 3.503

Eystri Rangá - 2.858

Blanda - 2295

Þverá/Kjarrá - 1755

Norðurá - 1218

Haffjarðará - 1178

Langá - 1106

Laxá í Dölum - 972

Laxá í Aðaldal - 962

 






×