Í gær hlaut Geysir viðurkenningu á Hönnunarverðlaunum Íslands fyrir bestu fjárfestinguna í hönnun. Í umsögn dómnefndar um Geysi segir meðal annars að Geysir hafi fengið einhverja færustu hönnuði landsins til starfa á öllum vígstöðvum, þannig hafi fyrirtækið skilgreint mikilvægi hönnunar í öllu þróunarferli og skapað ímynd og upplifun tengda fyrirtækinu með framúrskarandi hætti.
„Að fá svona verðlaun er gríðarleg viðurkenning fyrir okkur, þá fær maður klapp á bakið og staðfestingu á því að við séum að gera eitthvað rétt," segir Jóhann Guðlaugsson, eigandi Geysis, sem tók við verðlaununum í gær.
„Það má segja að viðskipta konsept fyrirtækisins sem rekur Geysisbúðirnar gangi allt út á hönnun, við höfum unnið með Ernu fatahönnuði, sem má segja að sé listrænn stjórnandi í fyrirtækinu, svo höfum við unnið með Hálfdáni Péturssyni við hönnun búða okkar. Við höfum fjárfest mjög mikið í því að gera þær fallegar og styðja við konseptið."
„Einar Geir Ingvarsson, grafískur hönnuður, er eiginlega auglýsingastofan okkar og kemur að öllu varðandi hönnun á auglýsingum og pakkningum og annað slíkt. Þetta er svo allt unnið í teymisvinnu innanhúss. Allt okkar konsept gengur út á metnaðarfulla hönnun, að minnsta kosti reynum við það. Þetta þarf allt að tala saman og ef einn hlekkur er brotinn þá virkar keðjann ekki," segir Jóhann.
Verðlaun fyrir fjárfestingu í hönnun voru fyrst veitt í fyrra en þá hlaut stoðtækjafyrirtækið Össur þau.
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar segist hafa viljað heiðra þá aðila sem taka stór og eftirtektaverð skref í þessa átt. „Þarna erum við að draga fram fyrirtæki sem eru ekki endilega sýnileg öðrum, og sýna hvaða fyrirtæki eru að vinna með þessum aðferðum."
