Sölumet hjá BMW Group Finnur Thorlacius skrifar 19. október 2016 14:43 Framtíðarsýn BMW.
Met var sett í september í heildarsölu á ökutækjum sem heyra undir BMW Group, en það eru BMW, Mini, Rolls-Royce og mótorhjól BMW Motorrad. Alls nam salan á heimsvísu 237.973 eintökum sem er aukning um 10,5% miðað við sama mánuð 2015. Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins jókst salan um 6,2% miðað við fyrra ár og seldust alls 1.746.638 ökutæki frá BMW Group á tímabilinu. Sala á bílum BMW jókst um 9,4% í september þegar alls voru afhentir 197.419 bílar, þar af um 40 þúsund rafmagnsbílar sem er meira en nokkru sinni áður. Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins jókst sala BMW um 6% miðað við sama tíma í fyrra og voru alls 1.479.936 bílar afhentir á tímabilinu í ár. Sala á BMW er einkum drifin áfram af gerðum X-línunnar, þar sem sala hefur aukist mikið hlutfallslega á öllum bílum, BMW X1, X3, X4 og X5. Þá þrefaldaðist sala á 7 línu BMW í september miðað við sama mánuð 2015, en alls voru rúmlega 6.200 lúxusbílar í 7-línunni afhentir í liðnum mánuði. Framtíðarsýn BMW næstu 100 ár er „hinn fullkomni ökumaður“. Megineinkenni bíla BMW felast í akstursánægju ökumannsins. Að mati BMW munu ökumenn BMW vilja halda áfram í þá ánægju sína og aka sjálfir í stað þess að bíllinn taki mest öll völd. BMW mun taka mið af þessu í hönnun BMW á næstu árum og áratugum en um leið kynna fleiri og enn fullkomnari tæknilausnir, m.a. á sviði stafrænna snjalllausna sem bjóða mun fleiri möguleika til aukins umferðaröryggis en nú þekkist. Eitt af því er sú lausn sem gera mun þann sem situr við stýrið að hinum fullkomna ökumann, eða „the ultimate driver,“ eins og BMW kallar lausnina.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent