Fyrsti rafmagnsbíll Audi fær nafnið E-Tron Finnur Thorlacius skrifar 18. október 2016 10:02 Audi E-Tron jepplingurinn verður eingöngu drifinn áfram með rafmagni.
Audi framleiðir nokkrar gerðir tengiltvinnbíla, svo sem A3 E-Tron, Q7 E-Tron og R8 E-tron. Þessir bílar ganga bæði fyrir rafmagni og brunavélum, en nú er Audi að smíða sinn fyrsta hreinræktaða rafmagnsbíl og hvaða nafn skildi sá bíll fá? Jú, hann verður einfaldlega kallaður Audi E-Tron og fær því enga tölustafi líkt og aðrir bílar frá þýska lúxusbílaframleiðandanum. Þessi rafmagnsbíll fellur í flokk jepplinga, en á teikniborði Audi er einnig minni gerð borgarbíls og stærri fólksbíll sem knúnir verða rafmagni eingöngu. Von er á þeim bílum við lok þessa áratugar, en jepplingurinn kemur á markað mun fyrr. Allir eru þessir bílar með drægni á bilinu 350 til 450 kílómetrar. Forstjóri Audi skýrði hið einfalda nafn Audi E-Tron út á þann veg að hann markaði jafn mikil tímamót fyrir Audi og Audi Quattro bíllinn gerði á sínum tíma og einfalt nafn hans án tölustafa væri hugsað á sama veg.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent