Tveggja vikna vetrardagaveisla Heklu Finnur Thorlacius skrifar 12. október 2016 09:30 Skoda Octavia er tilbúinn í veturinn.
Miðvikudaginn 12. október hefjast Vetrardagar í höfuðstöðvum HEKLU við Laugaveg. Vetrardagarnir standa yfir í tvær vikur og til sýnis verða allar helstu stjörnur Audi, Skoda, Mitsubishi og Volkswagen með áherslu á fjórhjóladrifna bíla. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem hyggjast fjárfesta í nýjum bíl fyrir veturinn að kynnast úrvalinu og fá ráðleggingar varðandi val á aukabúnaði. Í tilefni vetrardaga verða sýningarsalirnir stútfullir af tilboðum. Volkswagen Passat verður á tilboði, vetrardekk og dráttarbeisli fylgja öllum seldum Audi Q3 og Skoda býður 25% afslátt af aukahlutum með öllum seldum bílum. Vetrardekk og dráttarbeisli koma með öllum seldum Mitsubishi Outlander og pallbíllinn Volkswagen Amarok er á frábæru tilboði, svo eitthvað sé nefnt. Þess má einnig geta að allir fólksbílar hjá HEKLU koma nú með fimm ára ábyrgð. „Þetta er okkar leið til að taka vel á móti væntanlegum vetri. Í leiðinni gefst okkur tækifæri til að kynna bílaflotann okkar og gefa gestum góð ráð varðandi kaup,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri HEKLU. „Við erum með breiða línu vistvænna bíla, snarpa og hagkvæma borgarbíla og mikið úrval af fjórhjóladrifnum bílum. Má þar nefna Skoda Yeti, Mitsubishi Pajero og verðlaunabílana Audi Q7 e-tron quattro og Volkswagen Tiguan sem frumsýndir voru nýverið. Meðan á Vetrardögum stendur verðum við einnig með margvísleg tilboð á aukahlutum og það verður vetrarstemning í hverjum sal." Vetrardagar HEKLU hefjast miðvikudaginn 12. október og standa til 26. október.Audi Q7 getur einnig mætt vetrinum með óttaleysi.Volkswagen Tiguan.Mitsubishi Outlander er einn fjölmargra fjórhjóladrifinna bíla frá Heklu.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent