Veiði

Ágætt sumar að baki á svæðum Strengja

Karl Lúðvíksson skrifar
Flotur lax úr Hólaflúð í Jöklu
Flotur lax úr Hólaflúð í Jöklu Mynd: Strengir FB
Veiðiskýrsla fyrir veiðisvæðin hjá Veiðiþjónustunni Strengir endurspeglar ágætt sumar á svæðum félagsins og þá sérstaklega í Hrútafjarðará og Jöklusvæðinu.

Jöklusvæðið nýtur sífellt meiri vinsælda og hefur laxgengd aukist jafnt og þétt síðustu ár á svæðinu.  Eftir að laxastigi eða kannski er betra að segja laxafarvegur, var sprengdur í Steinboga kemst laxinn auðveldlega uppúr hylnum og áfram upp á efri svæðin og þar hafa komið í ljós margir fallegir veiðistaðir og er Hólaflúð líklega þekktastur af þeim.  Hrútafjarðará nýtur alltaf sömu vinsælda og hefur áinn verið ansi þétt setinn og þeir sem ætla sér daga í henni þurfa að bóka snemma.  Hér fyrir neðan er skýrsla frá Strengjum:

Jöklusvæðið kom ágætlega út, heildarlaxveiði 584 laxar og er þá talin með Fögruhlíðará sem gaf 100 laxa sem er met í þeirri á. Fylgir hún með Jöklu I svæðinu en Fögurhlíðarósinn er seldur sér og þar var mun einnig meiri bleikjuveiði en undanfarinn ár. Aðrar hliðarár Jöklu voru í meðallagi, Kaldá og Laxá, og Jökla sjálf ágæt. Reyndar kom yfirfall undir lok ágúst en annars hefði veiðin orðið meiri í Jöklu og einnig ef ástundun í september hefði verið meiri í þeim mánuði í hliðaránum, því töluvert er um lax núna í klakveiði í þeim. Endurbætur voru gerða á veiðihúsunum við Hálsakot og öll aðstaðan er orðinn fyrst flokks sem hefur mælst mjög vel fyrir hjá veiðimönnum.

Hrútafjarðará gaf 551 laxa sem er líklega fimmta besta sumarið í sögu árinnar. Einnig eru 63 bleikjur skráðar í veiðibók sem er aukning frá fyrra ári. Veiðin byrjaði vel, góðar göngur af stórlaxi en svo um mitt sumarið hægði um þegar lítið vatn var í ánni, en rauk svo aftur upp er fór að rigna síðsumars og nú í haust,svo flott vertíð á þessarri veiðislóð!


Breiðdalsá var nánast með sömu veiði á milli ára eða 375 laxa, en hefði væntanlega farið mun hærra ef ástundun í september hefði verið meiri en raun var. Byrjaði vel veiðin en dró af er leið á sumarið enda vantaði meira af smálaxi eins og víðar. En vænn stórlax og nokkrir um 20 pundin komu á land. Sjóbleikjuveiðin var tæplega 200 fiskar og hátt í 400 urriðar sem gerir þetta með bestu silungsveiðiám austurlands.

Minnivallalækur gaf um 400 urriða sem er meira en undanfarinn ár og veðurfarið hentaði vel til þurrfluguveiða í sumar sem þessi á er fræg fyrir.Nýjir veiðistaðir komu inn ofan við veiðihúsið og fjölbreytni svæðisins jókst þar með mikið.






×