Á blaðamannafundi í Þýskalandi í gær tilkynnti Elkon Musk forstjóri Tesla að fyrirtækið áformaði að reisa risarafhlöðuverksmiðju í Evrópu líkt og verið er að byggja í Bandaríkjunum. Í þessari verksmiðju yrðu bílar Tesla einnig smíðaðir.
Þessu lýsti Musk yfir um leið og hann greindi frá kaupum Tesla á þýska fyrirtækinu Grohmann Engineering sem framleiðir búnað til bílasmíði, eins og greint var frá hér í gær. Elon Musk greindi ekki frá hvar líklegast væri að þessi risarahlöðuverksmiðja myndi rísa í Evrópu, en þær gætu reyndar orðið fleiri en ein.
Risaverksmiðja Tesla í Bandaríkjunum rís nú hratt og þegar hún verður fullrisin verður hún eitt stærsta hús heims og álíka stórt og 174 NFL fótboltavellir. Þessi verksmiðja mun kosta ríflega 5 milljarða dollara og þar munu vinna 10.000 manns eftir um 3-4 ár, en nú þegar eru starfsmenn orðnir margir og framleiðsla komin í gang.
Í verksmiðjunni á að vera hægt að framleiða rafhlöður sem skila álíka afli og öll rafhlöðuframleiðsla heimsins árið 2014. Þak verksmiðjunnar verður alsett sólarpanelum og þar verður því virkjuð gríðarmikil sólarorka.
