Veturinn hefur vinninginn
Ný farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll fyrir árið 2017 var kynnt í gær. Eins og undanfarin ár er því spáð að fjölgun ferðamanna verði talin í tugum prósenta á milli ára – á það jafnt við um farþega til og frá landinu auk skiptifarþega sem aðeins millilenda hér á leið sinni yfir hafið.
Mörg undanfarin ár hefur keppikefli ferðaþjónustunnar í heild verið að fjölga ferðamönnum yfir vetrartímann – að gera ferðaþjónustuna að heilsársatvinnugrein. Þetta verkefni hefur tekist og fjölgun ferðamanna utan háannar er markverð. Margt skýrir þennan árangur, markaðsstarfið er eitt en Isavia setti til dæmis á fót hvatakerfi sem veitir flugfélögum sem hefja nýjar heilsársflugleiðir afslátt af lendingargjöldum. Þessi dreifing ferðamanna yfir árið þýðir mun betri nýtingu allra innviða sem við sögu koma; Keflavíkurflugvallar sjálfs, vega og gistirýmis, og er þjónustu og stoðgreinum hvers konar augljóslega í hag.
Sem dæmi var á fundinum farið yfir þróunina frá árinu 2010, en á því ári komu 50% erlendra ferðamanna yfir hásumarið og 23 prósent yfir vetrartímann – janúar til mars og nóvember til desember. Árið 2017 verður þetta hlutfall vetrinum í vil, en þá er gert ráð fyrir að 35 prósent erlendra ferðamanna komi yfir vetrarmánuðina og 33 prósent yfir hásumarið.

Gríðarleg fjárfesting
„Það eru erfiðir tímar á flugvellinum – að vera í mikilli uppbyggingu á flugvellinum í miklum vexti. Það er oft talað um að við séum ekki að gera nóg og því ágætt að benda á hvað við höfum verið að gera síðustu fimm ár og hvað stendur til,“ sagði Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri Tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar, og gerði grein fyrir að með árinu 2012 og út árið 2017 verði samtals búið að fjárfesta fyrir um 43 milljarða á Keflavíkurflugvelli. Til samanburðar mun nýr Landspítali kosta rúmlega 45 milljarða, ef áætlanir ganga eftir.
„Við erum því búin að byggja nýjan Landspítala á fimm árum án þess að mikið hafi verið tekið eftir,“ sagði Guðmundur og bætti við að það væri aðeins toppurinn á ísjakanum miðað við það sem þróunaráætlun Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll gerði ráð fyrir því nú eru stórframkvæmdir í undirbúningi á flugvellinum, en nokkur ár munu líða áður en þær miklu stækkanir sem unnið er að verða teknar að fullu í notkun.

„Það er ekkert mál að klúðra þessu,“ sagði Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í upphafi síns erindis og jarðtengdi fundargesti. Hún gerði að umtalsefni það sem hún telur „stóru fréttirnar“ sem eru fjölgun ferðamanna og þróun hennar á milli mánaða – sem væri einkar ánægjulegt að sjá að væri utan háannar. Það þýddi meiri framleiðni og nýtingu fjárfestinga. Eins, öfugt við fullyrðingar erlendra fjölmiðla um að ástæður uppgangs í ferðaþjónustu verði raktar til hruns og eldgosa, að markaðsstarf ferðaþjónustunnar og stjórnvalda hefði tekist giftusamlega, heilsársstarfsemi flugfélaganna og fjárfesting ferðaþjónustunnar í afþreyingu og gistirými til að gera Ísland sem áfangastað áhugaverðari. Þá nefndi hún skiptifarþegana – sem millilenda hérlendis – sem eru að skila tugum milljarða til þjóðarbúsins og það framboð af ferðamöguleikum sem raun ber vitni. Um 80 áfangastaðir eru í boði yfir sumarið og 50 yfir veturinn. Peningalega hliðin er sú að greinin skilar um 80 milljörðum í beinar tekjur til ríkissjóðs og 440 milljörðum í gjaldeyristekjur – auk þúsunda starfa um allt land.
„Ferðaþjónustan er orðin eins og efnahagslegt færiband fyrir þjóðarbúið. Hún hefur gífurleg bein og óbein áhrif hvert sem við lítum. Hún hefur stækkað kökuna og ekki gert atvinnulífið einhæfara, svo síður sé,“ sagði Helga en sló varnagla.

Þessi efnahagslegi stöðugleiki sem við köllum eftir er algjört lykilatriði til að framtíðarvöxtur og þróun greinarinnar gangi eftir,“ sagði Helga og nefndi ljón sem gætu verið í veginum – ekki síst gengis- og launaþróun. „Umhverfið er erfitt og þarna verða stjórnvöld að koma með okkur af fullum þunga og sýna ábyrgð gagnvart þessari atvinnugrein,“ sagði Helga og beindi orðum sínum til stjórnmálaflokkanna sem nú sitja og draga upp framtíðarplön sín fyrir næstu ár. Gerði hún þá kröfu að fjárveitingar til greinarinnar endurspegluðu þjóðhagslegt mikilvægi hennar og þörf fyrir uppbyggingu.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu