Stærsta tónlistarhátíð landsins Secret Solstice hefur farið ört stækkandi síðan hún var gangsett árið 2014.
Skipuleggjendur hátíðarinnar tilkynna í dag fyrstu tónlistaratriðin sem koma fram í Laugardalnum 15.-18. júní næstkomandi.
Rokksveitin Foo Fighters er þar fremst á lista ásamt bresku raftónlistargoðsögnunum úr The
Prodigy sem hefur verið ein vinsælasta rafsveit heims síðan á tíunda áratugnum. Einnig ber að nefna Richard Ashcroft, fyrrum forsprakka The Verve, Pharoahe Monch, Foreign Beggars, Dubfire, Novelist, Dusky og má vænta fleiri stjarna úr raftónlistarheiminum á borð við hústónlistarfrömuðinn Kerri Chandler sem snýr aftur til þess að spila á tónlistarhátíðinni í þriðja skiptið.
Íslendingar eru nú ekki lítið þekktir fyrir sína eigin tónlistarsenu og eiga því að sjálfsögðu sína fulltrúa á hátíðinni en þeir sem staðfest hafa komu sína eru meðal annars Högni, Úlfur Úlfur, Amabadama, Emmsjé Gauti, GKR, Tiny, Aron Can, KSF og Alvia Islandia.
Að auki hafa virtar tónlistarútgáfur á borð við Circoloco, Anjunadeep, Crew Love, ATG og SCI+TEC staðfest komu sína ásamt sínum listamönnum til þess að spila undir miðnætursólinni.
Einsog áður fer tónlistarhátíðin fram á sumarsólstöðunum helgina 15.-18. júní 2017 og mun því sólin ekki setjast á meðan á hátíðinni stendur. Þó þetta kunni að vera eðlislægt fyrir Íslendinga þá hefur þessi sérstaða hátíðarinnar orðið til þess að erlendir ferðamenn sækja hátíðina heim hvaðanæva úr veröldinni, ekki bara vegna tónlistarinnar heldur einnig vegna þessa magnaða náttúrufyrirbæris.
Í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar kemur fram að þeir leggi ríka áherslu á umhverfismál og það er henni mikið mál að minnka kolefnisfótspor sitt til muna.
„Er það því skipuleggjendum Secret Solstice mikill heiður að tilkynna að hátíðin hefur hlotið hinn alþjóðlega CarbonNeutral® gæðastimpil annað árið í röð. Þetta er að miklu leyti að þakka þeirri ákvörðun Secret Solstice að knýja hátíðina með jarðhitarafmagni sem framleitt er á hátíðarsvæðinu sjálfu ásamt því að vega upp á móti losun kolefnis með því að notast einungis við svonefnda hybrid bíla frá Toyota á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.
Miðar á fjórðu tónlistarhátíð Secret Solstice eru þegar komnir í sölu og eru fáanlegir á vefsíðunum Tix.is og Eventbrite fyrir 17.900 krónur.
Fyrsta nöfn tónlistaratriða Secret Solstice 2017 má sjá hér að neðan:
Foo Fighters
The Prodigy
Richard Ashcroft
Dubfire
Pharoahe Monch
Foreign Beggars
Dusky
Kerri Chandler
Rhye
Högni
Kiasmos
Úlfur Úlfur
Soul Clap
John Acquaviva
Wolf + Lamb
Amabadama
Emmsjé Gauti
Tania Vulcano
Droog
Yotto
Novelist
Soffía Björg
Artwork
Klose One
Tiny
BenSol
Shades of Reykjavík
GKR
Aron Can
Dave
Lord Pusswhip
Krysko & Greg Lord [UK]
Hildur
KSF
Alvia Islandia
SXSXSX
Fox Train Safari
Kilo
Captain Syrup
Marteinn
Foo Fighters og The Prodigy koma fram á Secret Solstice

Tengdar fréttir

Stór tilkynning frá Secret Solstice í dag
Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram í Laugardalnum 15.-18. júní á næsta ári.