Birtur hefur verið listi yfir bestu bílvélarnar í bílum sem til sölu eru í Bandaríkjunum (Annual Wards 10 Best Engines). Í fyrsta skipti er engin V8 vél á listanum, heldur eingöngu fjögurra og sex strokka vélar. Flestar þeirra eru með forþjöppu, en sumar fá aðstoð frá rafmagnsmótorum. Listinn yfir þessar 10 bestu vélar er eftirfarandi:
BMW M240i, 3,0 lítra DOHC, 6 strokka með forþjöppu
Chevrolet Volt, 1,5 lítra DOHC, 4 strokka og rafmótorar
Chrysler Pacifica Hybrid, 3,6 lítra DOHC V-6 með rafmótora
Ford Focus RS, 2,3 lítra DOHC, 4 strokkar með forþjöppu
Honda Accord Hybrid, 2,0 lítra DOHC, 4 strokka og rafmótorar
Hyundai Elantra Eco, 1,4 lítra DOHC, 4 strokka með forþjöppu
Infinity Q50, 3,0 lítra DOHC, 6 strokka með forþjöppu
Mazda CX-9, 2,5 lítra DOHC, 4 strokka með forþjöppu
Mercedes Benz C300, 2,0 lítra DOHC, 4 strokka með forþjöppu
Volvo V60 Polestar, 2,0 lítra DOHC, 4 strokka með forþjöppu og keflablásara
Þessi listi nú endurspeglar tilhneigingu bílaframleiðenda undanfarin ár að minnka vélar í bílum sínum en einnig því að bæta við rafmótorum, allt til að minnka eyðslu og mengun bíla sinna. Sem fyrr eru evrópskir og japanskir bílaframleiðendur sem að mestu fylla listann og bandarískir bílaframleiðendur fáséðir.
10 bestu vélarnar vestanhafs
