500 Volkswagen atvinnubílar afhentir Finnur Thorlacius skrifar 22. desember 2016 09:28 Atvinnubílar Volkswagen.
Tíu ára gamalt sölumet Volkswagen atvinnubíla var slegið hjá HEKLU í vikunni, þegar fimmhundraðasti atvinnubíllinn frá Volkswagen var afhentur við gleðilega athöfn, enda ekki á hverjum degi sem áratuga gömul met falla. Sá fimmhundraðasti reyndist VW Caddy en 300 eintök af sendibílunum vinsæla hafa selst það sem af er árinu 2016. Gamla sölumetið í atvinnubílum frá árinu 2006 var þó ekki mikið lægra, en það árið seldust 499 atvinnubílar frá Volkswagen. „Við erum himinlifandi með hversu vel stór og smá fyrirtæki og stofnanir hafa tekið Volkswagen atvinnubílunum, enda vinnuþjarkar sem endast vel og gera það sem ætlast er til af þeim. Það er líka ánægjulegt að slá sölumetið frá 2006 enn þá var heildarmarkaðurinn miklu stærri sem gerir þetta met enn sætara,“ segir Ívar Þór Sigurþórsson, sölustjóri Volkswagen atvinnubíla hjá HEKLU. Þá er vert að minna á að önnur kynslóð Volkswagen Amarok verður forsýnd á Stórsýningu HEKLU í ársbyrjun 2017, en hann er ekki aðeins glæsilegur pallbíll heldur uppfyllir hann allar helstu lúxuskröfur ásamt því að sameina áreiðanleika, öryggi og framúrskarandi hönnun. Amarok er með V6 vél, átta þrepa sjálfsskiptingu en öllum líkindum verður hægt að afhenda fyrstu bílana á vormánuðum.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Innlent