Sýning og kynningar hjá BL alla helgina Finnur Thorlacius skrifar 6. janúar 2017 15:03 Nýr Land Rover Discovery.
Starfsárið 2017 hjá BL og Hyundai er hafið af krafti með sérstökum janúartilboðum og frekari verðlækkunum á ýmsum nýjum bílum sem tóku gildi skömmu fyrir áramót umfram aðrar sem gerðar hafa verið allt að fjórum sinnum á undanförnum mánuðum. Um helgina verður því opið bæði laugardag og sunnudag þar sem kynntar verða allar helstu nýjungarnar sem framundan eru hjá fyrirtækinu á árinu.BL Sævarhöfða Við Sævarhöfðann verður m.a. rafmagnsbílinn Renault Zoe kynntur sem væntanlegur er í næsta mánuði og kosta mun frá 3.690 þúsunda króna. Þessi vinsælasti rafmagnsbíll á meginlandi Evrópu dregur allt að 400 km á hleðslunni miðað við bestu aðstæður. Einnig má nefna nýjan og rúmgóðan 7 manna Grand Scenic, einnig frá Renault, sem mun kosta frá 4.190 þúsundum króna, endurhannaðan Nissan Micra sem væntanlegur er í mars, og fjórhjóladrifna sjö manna Nissan X-Trail sportjeppann sem nú býðst með tveggja lítra dísilvél við sjálfskiptingu. Þá má heldur ekki gleyma nýjum Land Rover Discovery sem kynntur verður á vormánuðum sem áhugafólk gefst tækifæri til að kynna sér í sýndarveruleika um helgina. Nýr Land Rover Discovery kemur á einstaklega hagstæðu verði, en grunnútgáfa jeppans með tveggja lítra 180 hestafla TD4 dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu mun kosta 9.490.000 króna.Hyundai Garðabæ Hjá Hyundai í Garðabæ verður m.a. lögð áhersla á sportlega og tæknivædda útgáfu annarrar kynslóðar litla fimm manna fólksbílsins i10 sem frumsýndur var á alþjóðlegu bílasýningunni í París í september sl og kosta mun frá 1.760 þúsundum króna. Tengimöguleikar i10 veita honum leiðandi hlutverk í þessum stærðarflokki. Í farþegarýminu verða m.a. að finna nýtt leiðsögukerfi á nýjum 7” skjá með mikilli upplausn og LIVE Services, Apple CarPlayTM til að tengja við iPhone-síma og Android AutoTM til að tengja við samhæfa Android-snjallsíma. Í vegaleiðsögn LIVE Services fylgja umferðarupplýsingar í rauntíma, viðvaranir um hraðamyndavélar þar sem lög leyfa og upplýsingar um veðuraðstæður og áhugaverða staði á ferðalaginu. Einnig má nefna nýja hönnun á hleðslukví fyrir snjallsíma sem staðsett er á góðum stað til að síminn geti þjónað leiðsagnarhlutverki eða gert notandanum auðveldara með að stjórna spilun tónlistar á meðan rafhlaðan er að hlaðast.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira