Ljós skipta miklu máli á heimilum 3. mars 2017 14:00 Hægt er að fá fjölmargar gerðir af ljósaperum hjá BYKO.
KYNNING Ljósadeildin í BYKO er ævintýri líkust. Það blasa við glitrandi ljósakrónur, nýtísku víraljós, gamaldags loftljós, fallegir kúplar og allt þar á milli, að ógleymdum smart lömpum á borð eða gólf.Bjarni Ólafur Bjarnason leiðbeinir viðskiptavinum um val á ljósum og perum.Bjarni Ólafur Bjarnason deildarstjóri og annað starfsfólk ljósadeildarinnar tekur vel á móti viðskiptavinum, enda er það hafsjór fróðleiks þegar kemur að lýsingu fyrir heimilið. „Við leggjum mikið upp úr að bjóða gott úrval af ljósum við allra hæfi, hvort sem fólk vantar ljós fyrir fyrsta heimilið eða vill breyta til eða endurnýja og skipta út eldri ljósum. Við þjónustum einnig verktaka og þá sem eru að setja upp ljós í blokkir eða heilu húsin,“ segir Bjarni en hann fylgist vel með nýjungum á þessu sviði. LED-perur eru framtíðinInntur eftir tískusveiflum í ljósum segir hann allt vera í gangi en áberandi sé að yngra fólk velji víraljós eða grindarljós en þá sjást ljósaperurnar vel. „Nýja peran frá OSRAM kallast 1906 LED og hún er mjög vinsæl í slík ljós. Peran sjálf er falleg og stendur fyrir sínu ein og sér. Annars eru hefðbundnir kúplar alltaf vinsælir og hangandi ljós í öllum stærðum og gerðum.“ Lýsingin skiptir miklu máli á hverju heimili og því þarf að vanda valið vel. „Í dag er þróunin yfir í LED-ljós, sem er tvímælalaust framtíðin. Við erum með mesta úrvalið á landinu af perum frá OSRAM og þar eru LED-perurnar fremstar í flokki. LED-perurnar eru með lengri líftíma og eyða minna rafmagni. Þær gefa frá sér þetta hvíta ljós sem fólk sækist gjarnan eftir og ljósstyrkurinn er svipaður og var á gömlu glóperunum. Til lengri tíma litið ætti notkun á LED-perum að lækka rafmagnsreikninginn á heimilinu en þær eiga að endast í allt að fimmtán þúsund klukkutíma,“ útskýrir Bjarni.Umhverfisvænar perurStofnkostnaðurinn við að skipta yfir í LED-perur er dálítill í upphafi en það er fljótt að borga sig upp með lægri rafmagnsreikningi. Þær eru einnig umhverfisvænar, það kviknar strax á þeim og lítill hiti stafar frá ljósinu sjálfu. „LED-perur hafa mikið þol gegn hristingi og titringi og gefa ekki frá sér útfjólubláa eða innrauða geisla,“ segir Bjarni og bendir á að LED-perur séu umhverfisvænar og þeim eigi að skila til endurvinnslu. „Við hjá BYKO tökum á móti perum til förgunar.“Lightify gerir lífið litríkaraHelsta nýjungin í ljósadeild BYKO er nýtt ljósakerfi frá OSRAM sem kallast Lightify og er stórsnjallt. Lightify-kerfið er algjör bylting á þessu sviði en um er að ræða einfalda ljósastýringu sem hentar vel á öll heimili. „Lightify er einfalt kerfi sem gerir fólki kleift að stjórna lýsingunni á heimilinu eins og því hentar, í símanum. Hægt er að stýra snjallperum, innanhúss sem utan, á einfaldan hátt með appi í símanum. Appið má nota til að kveikja og slökkva, auka eða minnka ljósmagn eða breyta um lit. Ljósunum er hægt að stjórna hvar sem er, og því er þetta ekki síst sniðugt ef fólk er á ferðinni því þá virka ljósin sem þjófavörn. Þetta er ótrúlega einföld lausn sem auðvelt er að setja upp,“ segir Bjarni.Virk vefverslunBYKO þjónustar ekki aðeins höfuðborgarsvæðið heldur einnig landsbyggðina því rekin er öflug vefverslun á www.byko.is. „Það er alltaf nokkuð um að fólk kaupi ljós í gegnum netið og svo sendum við auðvitað hvert á land sem er."Úrvalið í ljósadeild BYKO er mikið.OSRAM-perur fást í öllum stærðum og gerðum í BYKO.Grindarljós eru mjög vinæl hjá unga fólkinu sem er að kaupa sína fyrstu íbúð.
Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira