Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði EYKT 16. október 2026 09:54 Í nýju hverfi í Hafnarfirði hafa risið sex glæsileg fjölbýlishús við Áshamar 12–26 sem hýsa 154 nútímalegar og Svansvottaðar íbúðir. Á morgun laugardag býður Eykt til glæsilegs opins húss að Áshamri 12–26 í Hafnarfirði milli kl. 13 og 15. Í nýju og ört vaxandi hverfi í Hafnarfirði hafa risið sex glæsileg fjölbýlishús við Áshamar 12–26. Þar býður byggingafélagið Eykt upp á 154 nútímalegar og Svansvottaðar íbúðir sem sameina vandaða hönnun, góð rými og nálægð við náttúru og fjölbreytta þjónustu. Íbúðirnar eru allar fullbúnar og tilbúnar til afhendingar og því geta kaupendur flutt beint inn í nýtt heimili án þess að bíða eftir framkvæmdalokum. „Hafnarfjörður er yndislegur bær og sérstaklega góður kostur fyrir fjölskyldufólk. Hér eru öflugir skólar, fjölbreytt menningarlíf, góðir veitingastaðir og öflugt íþróttastarf. Við Áshamar er stutt í alla helstu þjónustu og svo er náttúran nánast við bæjardyrnar,“ segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar. „Við Áshamar er stutt í alla helstu þjónustu og svo er náttúran nánast við bæjardyrnar,“ segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar. Stór og skjólgóð sameiginleg lóð Eitt af því sem gerir byggðina við Áshamar 12–26 sérstaka er skipulag húsanna og sameiginlegt útisvæði þeirra. Húsin sex mynda heildstæða byggð utan um rúmgóða lóð þar sem íbúar geta notið útiveru og börn leikið sér í öruggu umhverfi. „Í því sambandi má nefna að Eykt fékk viðurkenningu frá Hafnarfjarðarbæ fyrir einstaklega snyrtilega og fallega lóð við Áshamar 12-26 og erum við auðvitað mjög stollt af því.“ Sameiginlegt útisvæði húsanna býður upp á umhverfi þar sem íbúar geta notið útiveru og börn leikið sér í öruggu umhverfi. Undir húsunum er jafnframt rúmgott bílastæðahús sem hefur vakið sérstaka ánægju meðal kaupenda. „Við höfum fengið mikið hrós fyrir bílastæðahúsið. Það er mjög rúmgott og þægilegt í notkun, auðvelt er að leggja bílunum og gott pláss til að bakka út. Þetta eru kannski atriði sem fólk hugsar ekki alltaf fyrst um þegar það skoðar íbúðir en skipta verulegu máli í daglegu lífi.“ Á morgun, laugardaginn 17. október, býður Eykt til glæsilegs opins húss að Áshamri 12–26 í Hafnarfirði milli kl. 13 og 15. Þar verður slegið upp léttri hátíðarstemningu þar sem gestum og gangandi gefst tækifæri á að kynna sér svæðið og skoða glæsilegar íbúðir. Boðið verður upp á pylsur frá Bæjarins bestu, tónlist og Bylgjan verður í beinni útsendingu. Stutt í skóla, íþróttir og náttúru Staðsetningin í Hamranesi er annar stór kostur íbúðanna. Í nærliggjandi hverfum, Völlunum og Skarðshlíð, eru tveir grunnskólar og fjórir leikskólar. Einnig er gert ráð fyrir nýjum grunnskóla, tveimur fjögurra deilda leikskólum og hjúkrunar- og heilsugæslustöð í Hamranesi. „Það tekur ekki nema um tíu mínútur að ganga í skólann og öll helsta þjónusta er innan seilingar. Hér eru matvöruverslanir, íþróttahús og sundlaug. Svo er líka stutt í fjölbreytt menningar- og veitingalíf Hafnarfjarðar,“ segir Pétur. Við höfum fengið mikið hrós fyrir bílastæðahúsið. Það er mjög rúmgott og þægilegt í notkun. Hann segir nálægðina við náttúruna ekki síður mikilvæga. Hvaleyrarvatn og Helgafell eru skammt undan og fjölmargir möguleikar til gönguferða og útivistar í nágrenninu. Þá er einnig verið að hefja framkvæmdir við nýjan 18 holu golfvöll við hverfið. „Það er ótrúlega gott að geta skroppið út í náttúruna eftir langan og annasaman vinnudag. Hér er hægt að njóta þess að búa í rólegu umhverfi en hafa samt alla helstu þjónustu í næsta nágrenni.“ Íbúðir fyrir ólíkar þarfir Íbúðirnar við Áshamar eru tveggja til fjögurra herbergja og henta því fjölbreyttum hópi kaupenda, hvort sem um er að ræða ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu eign, barnafjölskyldur sem þurfa meira rými eða fólk sem vill minnka við sig. Það tekur ekki nema um tíu mínútur að ganga í skólann og öll helsta þjónusta er innan seilingar. „Við teljum íbúðirnar henta mjög breiðum hópi. Hér geta fyrstu kaupendur fundið sér gott heimili, fjölskyldur fengið meira pláss og þeir sem vilja einfalda lífið fundið hentuga íbúð. Fjögurra herbergja íbúðirnar eru til dæmis með tveimur baðherbergjum, sem getur verið mikill kostur á stærri heimilum. Það þekkja flestir hvað getur verið gott að hafa tvö baðherbergi þegar allir eru að gera sig klára á morgnana,“ segir Pétur og brosir. Svansvottun tryggir vandaða byggingu Öll húsin við Áshamar 12–26 eru Svansvottuð, sem þýðir að byggingarnar uppfylla strangar kröfur um umhverfisvernd, heilsu og gæði. Þar er meðal annars lögð áhersla á heilnæm byggingarefni, góð loftgæði, rakavarnir, hljóðvist og dagsbirtu. „Svansvottunin felur í sér mjög strangar kröfur til byggingarefna og framkvæmdarinnar allrar. Til dæmis eru settir síritar í gólfplötur til að fylgjast með raka á byggingartímanum og tryggja að rakastigið sé komið niður fyrir tilskilin mörk áður en gólfefni eru lögð,“ útskýrir Pétur. Svansvottunin felur í sér mjög strangar kröfur til byggingarefna og framkvæmdarinnar allrar. Hann segir jafnframt mikla áherslu hafa verið lagða á birtu og þægindi íbúanna. „Íbúðirnar eru einstaklega bjartar og það skiptir miklu máli fyrir vellíðan fólks. Svalirnar snúa í suður eða suðvestur og við hvetjum fólk eindregið til að koma og upplifa sjálft birtuna og rýmin.“ Hægt að flytja strax inn Framkvæmdum við húsin er að fullu lokið og allar íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar. Þær eru afhentar með ísskáp og uppþvottavél og kaupendur geta því hafið búskap án tafar. „Það er mikill kostur að geta skoðað fullbúna íbúð og vita nákvæmlega hvað maður er að kaupa. Við erum líka með sýningaríbúð þar sem fólk getur séð hvernig húsgögn raðast inn og fengið betri tilfinningu fyrir rýmunum,“ segir Pétur. Hann hvetur alla sem eru í fasteignahugleiðingum til að kynna sér íbúðirnar við Áshamar. „Myndir og teikningar segja auðvitað sína sögu en það jafnast ekkert á við að koma á staðinn, ganga um íbúðirnar og upplifa sjálfur hvað þær hafa upp á að bjóða.“ Hús og heimili Byggingariðnaður Hafnarfjörður Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Fleiri fréttir Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Sjá meira
„
Á morgun, laugardaginn 17. október, býður Eykt til glæsilegs opins húss að Áshamri 12–26 í Hafnarfirði milli kl. 13 og 15. Þar verður slegið upp léttri hátíðarstemningu þar sem gestum og gangandi gefst tækifæri á að kynna sér svæðið og skoða glæsilegar íbúðir. Boðið verður upp á pylsur frá Bæjarins bestu, tónlist og Bylgjan verður í beinni útsendingu.
Hús og heimili Byggingariðnaður Hafnarfjörður Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Fleiri fréttir Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Sjá meira