Audi dælir út RS-bílum Finnur Thorlacius skrifar 16. mars 2017 09:44 Ný kynslóð Audi RS4 í prufunum fyrir skömmu.
Sportdeild Audi, Audi Sport sem framleiðir S- og RS-útfærslur kraftabíla Audi virðist vera á sterum þessa dagana og undirbýr komu fjölmargra RS-bíla frá þýska lúxusbílaframleiðandanum. Stefan Winkelmann sem fer fyrir þessari deild Audi segir að með mikilli aukningu þessara bíla verði eiginlega til sérstakt merki innan Audi sem fyrir vikið sé orðinn sjálfstæður keppandi í heimi öflugra lúxusbíla. Winkelmann hefur boðað komu 8 mismunandi gerða RS-bíla og eru nýjar gerðir RS3 og RS5 Coupe þar á meðal. Hinar 6 gerðirnar munu sprautast út úr verksmiðjunum á þessu og næsta ári. Vitað er að á næstu mánuðum mun sportdeildin kynna nýja kynslóð Audi RS4 Avant og honum mun síðan fylgja RS5 Convertible og RS5 Sportback. Svo má búast við RS Q5 jepplingi og líklega líka RS Q3. Ekki er ljóst hver sjötti bíllinn verður, þar sem nýir A7 Sportback og Q8 munu koma nýir á næsta ári frá Audi má fullt eins búast við RS-útgáfum þeirra bíla. Ennfremur hefur heyrst að Audi Sport sé að gæla við að framleiða ofurbíl, en engum sögum fer um að það hafi verið samþykkt af Audi.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent