Nýr Panamera frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 10. mars 2017 15:07 Porsche Panamera.
Bílabúð Benna slær upp stórsýningu Porsche á laugardaginn 11. mars. Einsog fyrri daginn verður ekkert slegið af glæsileikanum og margt að sjá og skoða í Porsche salnum. Aðal númer sýningarinnar er önnur kynslóð lúxuskerrunnar Panamera, sem verður frumsýndur. Þetta er farartæki sem Porsche hefur skilgreint sem nýja vídd í flokki lúxusbíla. Í fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna kemur fram að bílablaðamenn hafi ekki sparað stóru orðin um þennan nýja Panamera m.a. að hann sé sönnun þess að allar hugmyndir um fjögurra dyra lúxusbíla hafi verið endurskoðaðar frá grunni. Niðurstaða þeirra er sú að menn hafi aldrei áður upplifað jafn magnaða sporteiginleika í svo miklum lúxusbíl. Þá segir að með nýjum Panamera sé kynntur til sögunnar gegnheill sportbíll sem skilar yfirburða afli og akstureiginleikum hvort sem um er að ræða styttri spretti eða löng afslöppuð ferðalög, og það sem meira er; allir farþegar í bílnum fá jafn stóran hlut í akstursánægjunni. Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi: „Porsche bíður líka uppá tvær rafmagns E-Hybrid plug-in útgáfur af Panamera sem núna er hægt að fá fjórhjóladrifnar. Meðal annars 462 hestafla bíl sem er 4,6 sek. í hundraðið. Þó að verðmat sé alltaf afstætt langar mig að benda á sérstaklega hagstætt verðið á honum, eða frá 12.950 þús. kr. Sömu sögu má segja af öðrum glæsilegum bílum frá Porsche, nú kostar t.d. sportjeppinn vinsæli, Porsche Macan, aðeins 8.950 þús. kr. og stóri bróðir hans, Cayenne S E-Hybrid, kostar í dag frá 9.950 þús. kr.“ Stórsýning Porsche fer fram í Porsche - salnum, laugardaginn 11. mars og allir eru velkomnir milli kl. 12:00 – 16:00.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent