„Þetta hefur verið áhugaverð helgi, því það hefur verið lítið um æfingar. Ferrari bílarnir virkuðu svo hraðir í dag. Mér tókst að bæta mig í hverri lotu. Ég er mjög ánægður að hafa Ferrari að keppa við, það er nauðsynlegt að hækka staðalinn í hvert skipti sem maður fer af stað,“ sagði Hamilton.
„Morgundagurinn verður óvenjulegur dagur. Mér skilst það eigi að rigna og ég hef ekki ekið neitt á regndekkjunum í ár. Það verður afar áhugaverð reynsla fyrir mig. Hvernig sem aðstæður verða þá verður munurinn lítill á milli okkar og Ferrari,“ bætti Hamilton við.
„Ég var nokkuð sáttur við minn hraðasta hring. Ég var kannski gunga á bremsunum í síðustu beygjunni, það dugði til að vera fljótari en Valtteri [Bottas]. Ég veit ekki hvort við erum með betri kepnisbíl en tímatöku bíl,“ sagði Sebastian Vettel sem varð annar á Ferrari.
„Það eru margir staðir hér til að tapa einum þúsundasta úr sekúndu sem var munurinn í Sebastian. Veðrið gæti spilað stóra rullu á morgun,“ sagði Valtteri Bottas sem varð þriðji á Mercedes.

„Ég er frekar vonsvikinn. Við vorum í ágætum málum í morgun á æfingunni en við vorum af einhverjum ástæðum lengi að komast af stað og tilfinningin í bílnum hvarf þegar komið var í tímatökuna,“ sagði Stoffel Vandoorne sem endaði 16. á McLaren bílnum í tímatökunni.
„Ég held að hringurinn hafi verið nógu góður til að komast í aðra lotu en svo vissi ég að það var eitthvað að þegar ég gat ekki opnað afturvænginn á fyrri beinakaflanum. Þá heyrði ég að það væri eitthvað að í síðustu beygjunni og ég hægði nægilega á mér, svo ég held að dómararnir finni ekkert að þessu,“ sagði Jolyon Palmer sem varð 18. á Renault bílnum.
„Ég er í lagi, ég var að leita takmarkana bílsins og ég fór aðeins út á gervigrasið og það endaði svona. Ég þarf að biðja liðið afsökunar og vona að morgundagurinn verði betri,“ sagði Antonio Giovinazzi sem endaði 15. í tímatökunni þrátt fyrir að hafa sett Sauber bílinn á varnarvegg í síðustu beygju brautarinnar.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég var á pari við Sergio [Perez] en gat ekki klárað á fullum krafti út af gulum flöggum [vegna Giovinazzi],“ sagði Esteban Ocon sam varð 20. í tímatökunni á Force India bílnum.