„Þetta er fjölskyldufyrirtæki ef svo má segja en við konan mín stöndum að þessu,“ segir Kristinn Ólafur Smárason, eigandi vefverslunnar Retrólíf, sem selur gamlar leikjatölvur og tölvuleiki ásamt unnustu sinni Heiðrúnu Matthildi Atladóttur.
Vefverslunin var opnuð í nóvember í fyrra en þar selja þau Kristinn og Heiðrún notaðar tölvur á borð við Nintendo NES, Sega Mega Drive og Playstation. Þar má einnig finna sjaldgæfa tölvuleiki sem ekki hafa verið seldir hér á landi í um 30 ár, eða jafnvel aldrei, og aukahluti eins og fjarstýringar og minniskubba.
„Ég hef verið að væflast í þessum klassísku tölvum síðasta áratuginn eða svo og safnað þeim og gömlum leikjum í langan tíma. Á endanum var ég kominn með gott safn af alls konar dóti og maður var farinn að fá fyrirspurnir á Facebook, Blandi og fleiri stöðum. Mig langaði því að prufa að opna litla vefverslun með þessar vörur og lét verða af því. Þetta fékk strax talsverða athygli og ég fæ mikið af fyrirspurnum um hina ýmsu leiki og tölvur og þá reynir maður að hlaupa til og redda,“ segir Kristinn.
Nintendo NES sló í gegn á níunda áratug síðustu aldar og hana mátti finna á mörgum íslenskum heimilum. Tölvan og leikir hennar eru að sögn Kristins vinsælustu vörurnar hjá Retrólíf en einnig er talsverð eftirspurn eftir leikjatölvu sem kom út um fimmtán árum síðar.
„Það kom mér mjög á óvart hversu vinsæl Playstation 2 er og leikir henni tengdir. Það er augljóslega eitthvað „költ-following“ í kringum hana hér á landi,“ segir Kristinn.
Er mikil eftirspurn eftir þessum vörum? „Ég segi nú ekki að það sé talsverð eftirspurn en þetta er sérstakur markaður og það er alltaf einhver sala. Ég er ekki á kafi í vinnu yfir þessu en það er vissulega áhugi og margir sem vilja finna aftur æskuárin í gegnum gamla tölvuleiki,“ segir Kristinn og bætir við að hann sé í fullu starfi hjá tæknifyrirtækinu GoMobile.
Kaupirðu tölvurnar og leikina hér heima eða á netinu?
„Ég geri hvort tveggja. Ég er búinn að vera á spjallborðum um alls konar tölvur ogg farinn að þekkja fólk með sama áhugamál um allan heim; í Japan, Þýskalandi, Skandinavíu og Ástralíu. Ef fólk vantar eitthvað mjög sérstakt get ég alltaf leitað til vissra aðila en maður reynir að halda innkaupunum þannig ef það er hægt.“
Gamla Nintendo NES langvinsælust
Haraldur Guðmundsson skrifar

Mest lesið

Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu
Viðskipti innlent

Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi
Viðskipti innlent

Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins
Viðskipti innlent


Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti
Atvinnulíf

Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent

Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð
Viðskipti erlent


Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn
Viðskipti erlent