Viðskipti innlent

Uggandi yfir af­stöðu VR

Árni Sæberg skrifar
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Ívar

Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni.

Peningastefnunefnd kynnti ákvörðun sína um óbreytta stýrivexti klukkan 08:30 í morgun. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

„Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði. Í ljósi þessarar óvissu og hversu þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar hafa verið telur peningastefnunefnd rétt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir meðal annars í ákvörðun nefndarinnar.

Hagfræðingur í beinni

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, var á línunni í Bítinu á Bylgjunni í morgun og brást við ákvörðun nefndarinnar í beinni útsendingu.

Hann sagði að ákvörðunin hefði ekki komið honum á óvart, enda hefðu allir greiningaraðilar spáð óbreyttum vöxtum og mælingar á markaði hefðu bent til þess sama. Rökstuðningur nefndarinnar fyrir óbreyttum vöxtum hefði einnig verið í takti við það sem hann átti von á.

Hvaða rök eru á bak við þessa ákvörðun?

„Það er í rauninni bara hvað hagkerfið er að kólna. Þeim er alltaf að fjölga og verða sterkari merkin um að vextirnir eru klárlega að hafa tilætluð áhrif á það sem við köllum raunhagkerfið, á umsvif. Við erum farin að sjá kólnun á íbúðamarkaði, atvinnuleysi að aukast á vinnumarkaði, sparnaður verulegur, fjárfesting með hægara móti og allt þetta sem þau vilja sjá gerast þegar aðhaldið er aukið. Það sem enn þá vantar upp á er að það skili sér svo yfir í verðbólgu og verðbólguvæntingar.“

Í því sambandi væri þó rétt að nefna að þó að mælingin í september hefði verið upp á 5,9 prósenta verðbólgu hefði hún verið þráðbeint í línu við spá Seðlabankans.

Þurfa ekki að huga að fórnarkostnaðinum

Spurður að því hversu mikið hagkerfið þyrfti að kólna og hversu mikill fórnarkostnaður mætti vera við það að ná niður verðbólgu sagði Jón Bjarki að Seðlabanki Íslands hefði það eina markmið, fyrir utan fjármálastöðugleika og að halda greiðslukerfum gangandi, að ná lögbundnu verðbólgumarkmiði.

„Þannig að strangt til tekið þá þyrftu þau ekkert að taka tillit til þess hver kostnaðurinn yrði í atvinnuleysi, í töpuðum hagvexti og þrengra búi heimila og fyrirtækja en auðvitað hugsa þau ekki þannig. Þau vilja gera þetta með eins mildum hætti og þau geta. Þó að þetta hafi forgang, að ná niður verðbólgunni.“

Safnast þegar saman kemur

Undanfarnar vikur hafa borist tíðindi af því að fyrirtæki ákveði að halda aftur af hækkunum vöruverðs, sveitarfélög haldi gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs og ríkisstjórn boði svipaðar aðgerðir. Jón Bjarki gefur lítið fyrir tal um að slíkt hafi lítil áhrif á verðbólgu og verðbólguvæntingar.

„Það segir ekki alla söguna, það er merkjasendingin sem í þessu felst. Það sem vantar upp á er að gjörðir fylgi orðum og þá safnast þegar saman kemur. Ef þessi bolti heldur áfram að rúlla og það verður almenn stemning fyrir því að það þurfi að leggja eitt og annað á sig til þess að verðbólgan hjaðni, annað en bara að tala um að allir standi saman, það munar ótrúlega miklu og þetta er mjög jákvætt. Ég ætla alls ekki að draga úr því.“

Klofin verkalýðshreyfing

Þá bárust fréttir af því í gærkvöldi að breiðfylking stéttarfélaga og Samtök atvinnulífsins hefðu náð saman um að koma í veg fyrir að kjarasamningar slitnuðu á morgun.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði aftur á móti í samtali við Vísi í morgun að sú ákvörðun breiðfylkingarinnar hefði engin áhrif á stöðu VR, Fagfélaganna og LÍV, sem halda áfram viðræðum við SA í dag. Frestur til að slíta kjarasamningum rennur út síðdegis á morgun.

„Þau eru auðvitað að einhverju leyti með aðra hópa sem þau eru að semja fyrir og bara þeirra mat á stöðunni er annað en okkar. Það er alveg eðlilegt að stéttarfélög í svona öflugri verkalýðshreyfingu séu ekki öll með nákvæmlega sama matið,“ sagði Halla í morgun.

Hvernig líst þér á það?

„Það setur að manni pínulítinn ugg og líka það að upplifa hversu klofin verkalýðshreyfingin virðist vera í afstöðu sinni til þess sem búið er að gera og þeirra tillagna sem ríkisstjórnin og SA hafa þó lagt fram. Þannig að það gæti komið upp sú staða auðvitað að samningum verði sagt upp hjá hluta af einkamarkaðinum en ekki hjá hluta, sem ég held að fáir hafi gert ráð fyrir þangað til bara núna á síðustu vikum. Það er ekki gott af því að það auðvitað dregur úr þeim ábata sem Starfsgreinasambandið, Efling og Samiðn eru að reyna að ná fram. Þau eru að leggja sitt af mörkum og það auðvitað slær svolítið á þann árangur sem þá er hægt að ná ef aðrir fylgja ekki með,“ sagði Jón Bjarki að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×